

Fiskistofa óskar eftir metnaðarfullum forritara á Akureyri
Vegna aukinna umsvifa leitum við eftir hressum liðsfélaga í góðan hóp forritara hjá Fiskistofu. Ef þú hefur áhuga á nýsmíði og nýjungum í upplýsingatækni þá gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig
-
Greining, þróun og smíði upplýsingatæknikerfa
-
Framþróun á veflausnum
-
Þátttaka í ýmsum verkefnum á sviðinu
-
Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilegu námi
-
Starfsreynsla við hugbúnaðargerð æskileg
-
Þekking og reynsla í bakendaþróun (.NET eða sambærilegt)
-
Þekking og reynsla í framendaforritun (React eða sambærilegt)
-
Þekking og reynsla af gagnagrunnum
-
Þekking og reynsla af Azure umhverfinu er kostur
-
Brennandi áhugi á hugbúnaðargerð
-
Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
-
Góð íslensku og ensku kunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði
-
Frumkvæði, drifkraftur og skipulagshæfni
-
Hæfileiki til að vinna sjálfstætt og í teymi
-
Hreint sakavottorð










