Samherji fiskeldi ehf.
Samherji fiskeldi ehf.

Fiskeldisfræðingur óskast í seiðaeldi

Samherji fiskeldi leitar að ábyrgum og áhugasömum fiskeldisfræðingi í seiðastöð félagsins að Núpum í Ölfusi.

Á Núpum fer fram klak og seiðaeldi á laxi og bleikju, allt frá hrognum að seiðum sem eru tilbúin til flutnings í áframeldi. Stöðin nýtir grunnvatn til eldisins og jarðhita til upphitunar. Dagleg störf eru fjölbreytt og sameina umhirðu fisks, fóðrun og eftirlit. Lögð er áhersla á velferð fisks, góðan aðbúnað og vönduð vinnubrögð.

Við leitum að einstaklingi sem vill nýta þekkingu sína, þróast í starfi og taka virkan þátt í daglegum rekstri stöðvarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Dagleg umhirða og fóðrun seiða.

  • Eftirlit með líðan fisks, vatnsgæðum og aðstæðum í eldiskerjum.

  • Mælingar og skráningar til að fylgjast með vexti og framgangi eldisins.

  • Þátttaka í flokkun, bólusetningu og flutningi seiða.

  • Eftirlit með búnaði, þrif og önnur tilfallandi verkefni í stöðinni.

Menntun og hæfni

  • Menntun í fiskeldisfræði, líffræði eða tengdum greinum.

  • Áhugi á fiskeldi og velferð dýra.

  • Ábyrgð, vandvirkni og góð umgengni.

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og í samstarfi við aðra.

  • Frumkvæði og vilji til að læra og takast á við fjölbreytt verkefni.

  • Reynsla af fiskeldi eða sambærilegum störfum er kostur.

Vinnutími og fríðindi

  • Vinnutími er frá kl. 8:00 til 16:00 alla virka daga.

  • Matur og gott kaffi í boði.

Samherji fiskeldi er í vexti og fram undan eru áhugaverð verkefni við uppbyggingu og framleiðslu. Hér gefst tækifæri til að byggja upp þekkingu og reynslu í seiðaeldi og taka þátt í áframhaldandi þróun stöðvarinnar.

Advertisement published12. October 2026
Application deadline25. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Núpar 5 171789, 816 Ölfus
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Driver's license (B)PathCreated with Sketch.Financial planningPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Microsoft WordPathCreated with Sketch.Meticulousness
Professions
Job Tags