
Leikskólinn Nóaborg
Leikskólinn Nóaborg er þriggja deilda leikskóli sem var tekinn í notkun í desember 1986. Að jafnaði dvelja um 66 börn samtímis í leikskólanum á þremur aldursskiptum deildum. Leikskólinn er staðsettur á mörkum Miðborgar og Hlíðahverfis og því auðvelt að ferðast í allar áttir hvort sem notaðir eru tveir jafnfljótir eða strætisvagnar.
Deildarstjóri óskast í leikskólann Nóaborg, Stangarholti 11
Leikskólinn Nóaborg, Stangarholti 11, óskar eftir að ráða deildarstjóra í fullt starf. Um er að ræða deildarstjórastöður á tveimur deildum. Annars vegar er það önnur deild yngri barna en þar eru 16 börn og hins vegar önnur deild eldri barna en þar er 21 barn.
Nóaborg er fjögurra deilda leikskóli og þar dvelja að jafnaði 74 börn. Í leikskólanum eru tvær eldri deildir með 21 barni á hvorri deild og svo tvær yngri deildir með 16 börnum á hvorri deild. Mikil endurnýjun á húsnæði leikskólans hefur átt sér stað á undanförnum árum og er vinnuaðstaða góð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra, þ.m.t.:
- Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni.
- Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar.
- Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá.
- Að bera ábyrgð á foreldrasamstarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun.
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Góð íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópska matskvarðanum.
Fríðindi í starfi
- Sundkort
- Menningarkort og bókasafnskort
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Frítt fæði
- Forgangur að leikskólaplássi fyrir starfsmannabörn
Advertisement published26. May 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills

Required
Location
Stangarholt 11, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Kvíslarskóli óskar eftir stærðfræðikennara
Kvíslarskóli

Pólskumælandi ráðgjafi frístunda- og menningarmiðlunar (Brúarsmiður) - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær

Spænskumælandi ráðgjafi frístunda- og menningarmiðlunar (Brúarsmiður) - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri tómstundamiðstöðvar - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri Veraldar - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari á miðstigi í Húnaskóla
Húnabyggð

Leikskólakennari óskast á Heilsuleikskólann Holtakot
Garðabær

Leikskólasérkennari til að sinna stuðningi á Holtakoti
Garðabær

Táknmálstalandi aðstoðarforstöðumaður í frístundaheimili
Frístundamiðstöðin Tjörnin

Kvíslarskóli óskar eftir kennara í Lífsleikni
Kvíslarskóli

Kvíslarskóli óskar eftir íslenskukennara
Kvíslarskóli

Kennarar - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær