Marbakki
Marbakki
Marbakki

Deildarstjóri í leikskólann Marbakka

Leikskólinn Marbakki auglýsir eftir deildarstjóra í 100% stöðu.

Leikskólinn Marbakki er fimm deilda leikskóli með rými fyrir 99 börn. Leikskólinn tók til starfa árið 1986 og er staðsettur í Sæbólshverfi í Kópavogi. Unnið er í anda starfsaðferða Reggio Emilia. Einkunnarorð skólans eru sjálfstæð, glöð og skapandi börn.

Leitað er eftir deildarstjóra sem hefur áhuga á starfi í anda Reggio Emilia og vill taka þátt í lærdómssamfélagi þar sem stöðugt er unnið að skólaþróun.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildastjóra.
  • Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagi deildar og miðlun upplýsinga.
  • Sinnir móttöku, þjálfun og leiðsögn nýs starfsfólks samkvæmt ferlum leikskólans.
  • Er hluti af stjórnendateymi leikskólans og kemur að áætlanagerð og mati.
  • Skipuleggur samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni, s.s. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl.
  • Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn og umönnun eftir þörfum.
  • Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna og stjórnun deildarinnar sem yfirmaður felur viðkomandi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun eða önnur kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu.
  • Reynsla af vinnu með börnum. 
  • Reynsla af stjórnun. 
  • Skapandi hugsun og metnaður í starfi.
  • Sjálfstæð vinnubrögð og samstarfshæfni.
  • Hæfileiki til að vera þátttakandi í lærdómssamfélagi í þróun.
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði.
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins

Styttri vinnuvika, stytting er að hluta til tekin á milli jóla- og nýárs, í dymbilviku og tveimur vetrarfríum

Advertisement published2. June 2026
Application deadline15. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Marbakkabraut 4, 200 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags