

Dönskukennari á unglingastigi - Öldutúnsskóli
Öldutúnsskóli auglýsir eftir dönskukennara á unglingastigi.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Í Öldutúnsskóla eru um 590 nemendur í 1. - 10. bekk.
Í Öldutúnsskóla stunda um 590 nemendur nám í 1.–10. bekk. Við skólann er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem leitast er við að gera námið bæði áhugavert og skemmtilegt. Mikil áhersla er lögð á jákvæðan starfsanda, fjölbreytta kennsluhætti, öfluga teymisvinnu og markvissa teymiskennslu.
Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og endurspeglast þau í öllu starfi hans. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og Olweusaráætlun gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Jafnframt er lögð rík áhersla á umhverfismál og sjálfbærni.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast almenna dönskukennslu á unglingastigi í samstarfi við skólastjórnendur, kennara og foreldra
- Taka þátt í uppbyggingu og þróun skólastarfs
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk skólans
- Vinna að þróun kennsluhátta og skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
- Starfa samkvæmt stefnu og gildum skólans
- Taka þátt í að skapa jákvætt og öruggt náms- og starfsumhverfi fyrir nemendur og starfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
- Áhugi og/eða reynsla af dönskukennslu.
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Stundvísi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans
- Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu samband við okkur.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veita Margrét Sverrisdóttir skólastjóri, í síma 664-5894, og Áslaug Hreiðarsdóttir aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5895
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http:www.oldutunsskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 16. júní 2026
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Icelandic




























