Helgafellsskóli
Helgafellsskóli
Helgafellsskóli

Bókasafnsfræðingur óskast

Má bjóða þér starf á frábærum vinnustað.

Helgafellsskóli í Mosfellsbæ er samrekinn leik- og grunnskóli með fjórar leikskóladeildir og grunnskólanemendur í 1. - 10. bekk.

Á næsta skólaári stendur til að setja upp bókasafn og leitum við því að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur þekkingu á uppsetningu og starfi bókasafns, áhuga á að vinna með börnum og mikla hæfni í mannlegum samskiptum.

Um er að ræða 75% starf og verður ráðið í stöðuna frá 1. ágúst 2026

Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppsetning og utanumhald á bókasafni skólans
  • Innkaup á nýjum bókum 
  • Skráning og flokkun á bókakosti skólans
  • Aðstoð við nemendur og starfsmenn skólans varðandi upplýsingaöflun og val á bókum
  • Fræðsla um bókasafns- og upplýsingalæsi
  • Þátttaka í læsis- og þróunarverkefnu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Próf í upplýsingafræði og starfsreynsla á því sviði
  • Þekking á Ölmu bókasafnskerfi er kostur
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Advertisement published31. March 2026
Application deadline30. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Gerplustræti 14, 270 Mosfellsbær
Type of work
Professions
Job Tags