
Air Atlanta Icelandic
Air Atlanta var stofnað árið 1986 og hefur verið í rekstri allar götur síðan. Félagið rekur fjórtán breiðþotur af gerðinni Boeing 747-400. Höfuðstöðvar félagsins eru staðsettar á Íslandi en flugrekstur á sér stað víða um heiminn.
Félagið sérhæfir sig í leigu á flugvélum ásamt áhöfnum til annara flugfélaga og gætir þess að flugleiðir viðskiptavina okkar séu starfræktar á öruggan og hagkvæman hátt.

Avionics/Modifications Engineer
Air Atlanta leitar að öflugum aðila til að ganga til liðs við verkfræðideild félagsins.
Í verkfræðideildinni starfar samheldinn hópur sem sinnir verkefnum tengdum viðhaldi, áreiðanleika og áframhaldandi lofthæfi flugvélaflotans, í nánu samstarfi við flugvélaframleiðendur, viðhaldsaðila og aðra samstarfsaðila.
Air Atlanta Icelandic rekur Boeing 747-400 og Boeing 777-200/-300 flugvélar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með Avionics-búnaði flugvélaflotans og tilheyrandi tæknilegum gögnum
- Umsjá og aðstoð við stærri breytingar á flugvélum ásamt lofthæfi gögnum
- Umsjón og uppfærslur á hugbúnaði um borð í flugvélum
- Tæknileg aðstoð við bilanagreiningu (troubleshooting) og úrlausn tæknilegra vandamála
- Greining og úrvinnsla tæknilegra gagna
- Samstarf við flugvélaframleiðendur, viðhaldsaðila og aðra birgja vegna tæknilegra mála
- Náið samstarf við aðrar deildir sem sinna áframhaldandi lofthæfi og viðhaldi flugflotans
- Önnur verkefni í samráði við Manager Engineering
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða starfsreynsla á sviði flugvirkjunar, rafmagns-, rafeinda- eða flugverkfræði eða sambærilegur tæknilegur bakgrunnur
- EASA Part-66 B2 flugvirkjaskírteini er kostur
- Þekking og/eða reynsla af Avionics-kerfum flugvéla
- Reynsla af verkfræði-, viðhalds- eða tæknistörfum innan flugrekstrar er kostur
- Reynsla af Boeing 747-400 og/eða Boeing 777 er kostur
- Hæfni til að lesa, túlka og vinna úr tæknilegum gögnum og viðhaldsleiðbeiningum
- Þekking á EASA Part-M og Part-CAMO og tengdum kröfum um áframhaldandi lofthæfi er kostur
- Mjög góð enskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
- Nákvæm og öguð vinnubrögð ásamt frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Sterk öryggisvitund og góð samskipta- og samstarfshæfni
Advertisement published5. October 2026
Application deadline18. October 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Hlíðasmári 3, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Hlutastarf í Ground Operations Center
Airport Associates

Tækjasérfræðingur – uppsetning, þjónusta og þjálfun
DTE

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Field Service Specialist (Service, Build & Enablement)
DTE

Sérfræðingur - Fyrirtækjaráðgjöf
Landsbankinn

Verkefnastjóri í framkvæmdadeild
Yrkir eignir ehf.

Deildarstjóri lagna og loftræsinga / Head of Discipline HVAC
COWI

Samningastjóri
Veitur

Sérfræðingur í framkvæmdareftirliti
EFLA hf

Verkefnastjórnun á byggingasviði
EFLA hf

Mechatronics Engineer
Laki Power

Sérfræðingur Þjónustumiðju
Isavia / Keflavíkurflugvöllur