
BL ehf.
BL er eitt stærsta og elsta bílaþjónustufyrirtæki landsins og nær saga okkar allt aftur til ársins 1954.
Á þeim tíma hafa bílar og bílaframleiðsla breyst gríðarlega og sjaldan hefur þróunin verið jafn spennandi og einmitt núna þegar nýir möguleikar eru að opnast til að koma okkur hratt og örugglega milli staða í sem mestri sátt við umhverfið og náttúruna.
Á fimm starfsstöðvum rekum við umboð fyrir fólks- og atvinnubíla frá 12 framleiðendum og starfrækjum vottuð þjónustu-, málningar- og réttingaverkstæði sem eru ein þau fullkomnustu á landinu. Við leggjum áherslu á góða starfsaðstöðu og starfsanda og hjá okkur er öflugt starfsmannafélag. BL er með jafnlaunavottun og við erum fyrirmyndarfyrirtæki VR.
Hvort sem þú leitar að tímabundnu starfi eða hyggur á fagmenntun til framtíðar þá færðu frábært tækifæri hjá BL til að kynnast nýjustu tækni og öðlast reynslu í einhverri mikilvægustu og fjölbreyttustu atvinnugrein samtímans í návígi við marga af fullkomnustu og glæsilegustu bílum heims.

Almenn umsókn
BL leitast eftir að ráða til sín starfsfólk sem hefur gaman af að veita góða þjónustu, góðri samvinnu og samskiptum og löngun til að skara framúr.
Við bjóðum upp á skemmtilegt og hvetjandi vinnuumhverfi ásamt góðri vinnuaðstöðu.
Ef þetta er eitthvað sem heillar þig hvetjum við þig til að leggja inn starfsumsókn með því að senda inn umsókn hér!
Advertisement published5. April 2022
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Type of work
Skills
Driver's licence
Professions
Job Tags
Similar jobs (6)

Gestgjafar Sky Lagoon/Hosts at Sky Lagoon
Sky Lagoon

Aðstoðarkona óskast í afleysingarstarf á Akureyri
NPA miðstöðin

Staðarskáli - Hrútafirði
N1

Aðstoðarkonur óskast í NPA-starf á kvöld- og helgarvaktir tímabundið starf til 31 október
NPA miðstöðin

Gólflagningar - Akureyri
Gólflagningar

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðvum Kópavogsbæjar
Félkó