
BL ehf.
BL er eitt stærsta og elsta bílaþjónustufyrirtæki landsins og nær saga okkar allt aftur til ársins 1954.
Á þeim tíma hafa bílar og bílaframleiðsla breyst gríðarlega og sjaldan hefur þróunin verið jafn spennandi og einmitt núna þegar nýir möguleikar eru að opnast til að koma okkur hratt og örugglega milli staða í sem mestri sátt við umhverfið og náttúruna.
Á fimm starfsstöðvum rekum við umboð fyrir fólks- og atvinnubíla frá 12 framleiðendum og starfrækjum vottuð þjónustu-, málningar- og réttingaverkstæði sem eru ein þau fullkomnustu á landinu. Við leggjum áherslu á góða starfsaðstöðu og starfsanda og hjá okkur er öflugt starfsmannafélag. BL er með jafnlaunavottun og við erum fyrirmyndarfyrirtæki VR.
Hvort sem þú leitar að tímabundnu starfi eða hyggur á fagmenntun til framtíðar þá færðu frábært tækifæri hjá BL til að kynnast nýjustu tækni og öðlast reynslu í einhverri mikilvægustu og fjölbreyttustu atvinnugrein samtímans í návígi við marga af fullkomnustu og glæsilegustu bílum heims.

Starf í söluskoðun
Við óskum eftir að ráða til starfa nákvæman og vandvirkan starfsmann í söluskoðun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst í að söluskoða bíla og halda skýrslur um allar söluskoðanir sem gerðar eru.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í bifvélavirkjun kostur
- Almenn þekking á bílum
- Góð tölvufærni
- Góð þjónustulund
- Sjálfstæði í starfi
- Nákvæm og öguð vinnubrögð
- Ökuréttindi
- Íslenskukunnátta skilyrði
Fríðindi í starfi
- Afsláttur á hleðslustöðvum Ísorku
- Afsláttarkjör af bílum, aukahlutum, varahlutum ofl.
- Mötuneyti með heitum mat
- Afsláttur af leigu á bílum hjá Hertz
- Íþróttastyrkur
Advertisement published15. October 2026
Application deadline29. October 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Reykjavík: Bifvélavirki/vélvirki óskast 🔧
Íslenska gámafélagið ehf.

Tæknimaður á verkstæði / Raftæki
Raftækjaverkstæðið

Bifvélavirkjar - Askja Reykjanesbæ
Bílaumboðið Askja

Þjónustumiðstöð Kópavogs leitar að öflugum og sjálfstæðum iðnaðarmanni
Þjónustumiðstöð Kópavogs

Uppsetning og viðhald á sjálfvirkum búnaði.
Járn og Gler hf

Bifvélavirki / reyndur bílaáhugamaður óskast einn dag í viku
Bílasafn

Viðgerðarmaður / vörubílstjóri
Stéttafélagið ehf.

Okkur vantar starfsmann strax í dekkjatörnina. Starfið er tímabundið.
Arctic Trucks Ísland ehf.

Bifvélavirkjar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Bifvélavirki / bifreiðasmiður í jeppabreytingar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Starfsmaður á verkstæði: Bifvélavirki / vélvirki
Intellecta

Bifvélavirki á ferð
BL ehf.