Mímir - símenntun
Mímir - símenntun
Mímir - símenntun

Íslenska og atvinnulíf fyrir arabískumælandi

ÍSLENSKA OG ATVINNULÍF FYRIR ARABÍSKUMÆLANDI

Íslenskunámskeið fyrir byrjendur (A1.1 skv. Evrópska tungumálarammanum) með hagnýtum upplýsingum og orðaforða um íslenskt atvinnulíf. Áherslan er lögð á samskipti í daglegu lífi og starfi og hagnýtar upplýsingar (m.a. árangursríkar aðferðir í tungumálanámi, hvernig á að lesa launaseðilinn, hvernig fylla á út umsókn um styrki hjá stéttarfélagi, skattar, réttindi og skyldur á vinnumarkaði, almannatryggingar, lífeyrissjóður) og orðaforða tengdan atvinnulífi. Námskeiðið er lengra en hefðbundið íslenskunámskeið (58 klukkustundir í staðinn fyrir 40).

Námið er kennt skv. námskrá framhaldsfræðslunnar; Íslenska og atvinnulífið sem er vottuð af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði.

Náms- og starfsráðgjöf hjá ráðgjöfum Mímis stendur öllum þátttakendum til boða.

Í lok námskeiðs er staða nemenda metin og þeim ráðlagt um áframhaldandi íslenskunám og/eða námsleiðir framhaldsfræðslunnar.

Kennt þriðjudaga og fimmtudaga milli 16:00 og 19:00

Verð á námsleiðum er birt með fyrirvara um breytingar

Starts
30. Sep 2025
Type
On site
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories