

Þjálfun í lakkleiðréttingum og yfirborðsvernd
Námskeiðið er ætlað bifreiðasmiðum, bílamálurum, sérfræðingum í lakkyfirborðsleiðréttingum og öðrum sem vilja öðlast faglega og vísindalega þekkingu á lakleiðréttingum, greiningu yfirborðs og yfirborðsvernd. Það hentar bæði þeim sem eru að hefja störf á þessu sviði og reyndum tæknimönnum sem vilja styrkja þekkingu sína og öðlast viðurkennda vottun.
Á námskeiðinu læra þátttakendur meðal annars að mæla þykkt lakks, greina og flokka yfirborðsgalla, framkvæma djúphreinsun og velja réttar aðferðir, vélar, púða og slípiefni fyrir mismunandi lakkerfi. Einnig er farið yfir áhættumat, leiðréttingarferli og hvernig meta má hvenær yfirborðsgallar eru utan öruggra leiðréttingarmarka.
Fjallað er um yfirborðsvernd og undirbúning fyrir húðun, meðal annars vax, þéttiefni og keramikhúðun. Þátttakendur læra einnig faglegt verkflæði frá fyrstu skoðun bifreiðar til afhendingar og hvernig skráning og upplýsingagjöf til viðskiptavina á að fara fram.
Námskeiðið er þrír dagar, samtals 24 kennslustundir, og skiptist í bóklega kennslu, sýnikennslu og verklegar æfingar. Þátttakendur vinna sjálfstætt að verkefnum undir leiðsögn kennara og vinna meðal annars með raunverulegar bifreiðar og æfingaplötur.
Dagur 1: Yfirborðsfræði, efnafræði, mælingar og djúphreinsun.
Dagur 2: Slípifræði, vélar og framkvæmd lakkyfirborðsleiðréttingar.
Dagur 3: Yfirborðsvernd, faglegt verkflæði og vottunarpróf.
Til að ljúka námskeiðinu þarf 100% mætingu og þátttakendur þurfa að sýna fram á hæfni í bæði bóklegu og verklegu prófi.
Kennslutungumál: Enska
Lengd: 3 dagar / 24 kennslustundir
Staðsetning: Iðan fræðslusetur, Vatnagörðum 20, Reykjavík