Þórey Sigþórsdóttir
Þórey Sigþórsdóttir
Þórey Sigþórsdóttir

Ræktaðu Röddina — raddþjálfun fyrir fagfólk

Notar þú röddina í starfi?

Kennir þú, leiðir hóp eða talar reglulega fyrir framan fólk?

Ræktaðu Röddina er þétt helgarnámskeið í raddþjálfun — 18.–20. september 2026 í Reykjavík. 14 klukkustundir, 10 sæti.

Snemmskráningarverð 78.000 kr til og með 7. september (eftir það 88.000 kr). Stéttarfélög styrkja þetta námskeið gjarnan.

Sjáðu dagskrá helgarinnar, umsagnir þátttakenda og stutt myndband frá mér hér: https://programs.thoreysigthorsdottir.com/raektadu-roddina

Þegar ég held fyrirlestra byrja ég alltaf á tveimur spurningum.

Hver ykkar hefur röddina að atvinnutæki? Allar hendur fara upp.

Hver ykkar þjálfar röddina reglulega? Ein hönd. Stundum engin.

Þarna er þekkingargap. Ekki leti — fólk veit einfaldlega ekki að þetta sé hægt. Við þjálfum okkur fyrir maraþon og færum bílinn í skoðun. Tölvuna getum við endurnýjað — en við eigum bara eina rödd.

Á námskeiðinu:

  • styrkir þú röddina og eykur raddúthald
  • minnkar spennu og framkomukvíða
  • eykur nærveru og áhrif
  • lærir að tala þannig að fólk hlusti — með skýrmælgi, ekki hávaða

Við vinnum með fjóra þætti á einni helgi: öndun, rödd, rými og texta. Hver eining byggir á þeirri sem á undan kemur. Þú ferð heim með æfingar sem taka 10–15 mínútur á dag og halda áfram að virka.

Praktískt:

📍 Rafmennt, Stórhöfða 27, Reykjavík
📅 18.–20. september 2026 — föstudag 17–21, laugardag og sunnudag 10:30–15:30
⏱️ 14 klukkustundir · 10 sæti
💰 Snemmskráningarverð 78.000 kr til og með 7. september — eftir það 88.000 kr
🎟️ Sætið tryggt með 10.000 kr staðfestingargjaldi sem dregst frá heildarverði
🎁 Fyrstu fimm sem skrá sig fá einkatíma með mér í október
☕ Innifalið: námskeiðsgögn, staðfestingarskjal og létt hressing í pásum

Stéttarfélög styrkja þetta námskeið gjarnan — það borgar sig að kanna réttinn þinn. Margir eiga meira inni en þeir halda.

Snemmskráningin gildir til 7. september. Skráningu lýkur 15. september — eða þegar sætin klárast.

Kynntu þér námskeiðið og tryggðu þér sæti hér: https://programs.thoreysigthorsdottir.com/raektadu-roddina

Kennari: Þórey Sigþórsdóttir — leikkona, leikstjóri og markþjálfi. Viðurkenndur kennari í raddþjálfun Nadine George og yfirmaður Nadine George Voice Work á Íslandi. Kennsluréttindi frá Listaháskóla Íslands og rúmlega 30 ára reynsla af raddþjálfun og leiklistarkennslu.

Hefst
18. sept. 2026
Tegund
Staðnám
Tímalengd
3 skipti
Verð
78.000 kr.
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar