

Lög um opinber innkaup
Hagnýtt námskeið um lög og framkvæmd opinberra innkaupa, með áherslu á það sem skiptir máli við gerð útboða og tilboða.
Grundvallarnámskeið fyrir öll sem vinna við opinber innkaup eða tilboðsgerð í opinberum útboðum.
Lög um opinber innkaup nr. 120/2016 gilda um kaup opinberra aðila á þjónustu, vörum og verkframkvæmdum. Þegar opinber innkaup ná tilteknum fjárhæðum ber opinberum aðilum að viðhafa gegnsætt ferli, gæta samkeppni og jafnræðis milli fyrirtækja.
Námskeiðið gagnast lögfræðingum og öðrum sérfræðingum hjá opinberum aðilum, bæði ríki og sveitarfélögum, sem koma að opinberum innkaupum.
Það er einnig gagnlegt fyrir lögfræðinga sem koma að kæru- eða dómsmálum á sviði opinberra innkaupa fyrir kærunefnd útboðsmála eða fyrir dómstólum.
Þá gagnast námskeiðið starfsmönnum fyrirtækja sem eru bjóðendur í opinberum útboðum, svo sem verkfræðingum og öðrum sérfræðingum.