

Leikskólastarfsfólk – Fagnámskeið 2 – Blandað nám
Á námskeiðinu er lögð áhersla á skapandi starf og þroska barna. Haltu áfram í hagnýtu og eflandi námi fyrir starfsfólk leikskóla.
Um námið
Á fagnámskeiðum Mímis er lögð rík áhersla á að styrkja persónulega og starfstengda færni. Markmiðið er að efla sjálfstraust þitt og veita þér hagnýt verkfæri til að takast á við fjölbreytt verkefni í starfi. Námskeiðið er tækifæri fyrir þig til að dýpka þekkingu þína og vaxa enn frekar sem fagmanneskja.
Í náminu munt þú kynnast og vinna með:
- Listastarf með börnum: Fáðu innblástur og aðferðir til að efla sköpunargáfu barna.
- Innra starf og námskrá leikskóla: Dýpkaðu skilning þinn á skipulagi og markmiðum leikskólastarfsins.
- Íslenskukennslu: Fáðu góð ráð varðandi íslenskukennslu fyrir börn.
- Þroska barna: Lærðu um helstu þætti í þroska barna til að geta mætt þörfum þeirra enn betur.
- Slysavarnir: Fáðu faglega og hagnýta þekkingu á öryggis- og slysavörnum.
Einnig er farið í heimsókn á leikskóla til að fá verðmæta innsýn og kynnast starfsemi þeirra.
Námsgreinar
- Heilsuefling
- Heimsókn í leikskóla
- Innra starf leikskóla
- Íslenska fyrir tvítyngd börn
- Líkamsbeiting og vinnuaðstaða
- Listastarf með börnum
- Námskrá leikskóla
- Þroski leikskólabarna
- Slysavarnir
Fyrir hverja er námið?
Námið er fyrir þau sem starfa á leikskólum, eru eldri en 20 ára og hafa ekki lokið formlegu framhaldsskólanámi.
Athugið: Í undantekningartilfellum er heimilt að taka inn í námið starfsfólk á aldrinum 18-20 ára ef það er í fullu starfi.