
Iðan fræðslusetur

Læsa, merkja, prófa
Lærðu aðferðir til að tryggja öryggi þitt og annarra með læsingum, merkingum og prófunum áður en vinna hefst.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað öllum sem starfa við vél- og rafbúnað eða í umhverfi þar sem hætta er á óvæntri ræsingu eða orkulosun við viðhald og viðgerðir.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að kenna þátttakendum aðferðir til að koma í veg fyrir slysa¬hættu vegna óvæntrar ræsingar eða orkulosunar með því að nota staðlað öryggisferli; Læsa, merkja, prófa.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Hvað felst í ferlinu Læsa, merkja, prófa (Lockout, Tagout, Tryout – LOTO)
- Aðferðir til að aftengja og læsa orkuuppsprettur á öruggan hátt
- Rétta notkun persónulása og merkinga til að tryggja öryggi starfsfólks
- Mikilvægi prófunar áður en vinna hefst til að ganga úr skugga um að öll orka sé örugglega aftengd
- Gagnsemi aðferðarinnar við að draga úr slysum og bæta vinnuvernd
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Geta skipulagt, framkvæmt og fjarlægt læsingar sem tryggja öryggi starfsfólks
- Geta notað persónulás á réttan hátt til að tryggja eigið öryggi
- Skilja mikilvægi þess að framkvæma prófanir áður en vinna hefst
- Þekkja helstu áhættuþætti sem tengjast orkulosun og óvæntri ræsingu
Aðrar upplýsingar:
- Engar sérstakar forkröfur eru gerðar.
Hefst
15. sept. 2026Tegund
FjarnámTímalengd
1 skiptiDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Iðan fræðslusetur
Upprifjun fyrir sveinspróf í bifvélavirkjun
Iðan fræðsluseturStaðnám16. sept.
Áhættugreiningar í bygginga- og mannvirkjagerð
Iðan fræðsluseturStaðnám15. sept.
Brunaþéttingar
Iðan fræðsluseturStaðnám10. sept.
Masterclass í After Effects
Iðan fræðslusetur15. sept.
Heit vinna
Iðan fræðsluseturFjarnám14. sept.
Aukið öryggi í bygginga- og mannvirkjagreinum
Iðan fræðsluseturStaðnám11. sept.
Skyndihjálp á verkstað
Iðan fræðsluseturStaðnám10. sept.
Vinna í lokuðu rými
Iðan fræðsluseturFjarnám07. sept.
Verkleg kennsla: Umbrot og framleiðsla í InDesign
Iðan fræðslusetur09. sept.