

Kvikmyndahandrit – Sögur, skrif og bygging.
Góð saga getur fengið fólk til að umbylta lífi sínu. Sækja um skilnað eða fara í stríð! En hvað er saga? Úr hverju eru sögur gerðar? Hvað þarf að vera í sögu? Og af hverju virka sögur eins og þær virka?Á námskeiðinu verður aðaláherslan lögð á verk þátttakenda enda er það hugsað sem ritsmiðja.
Á námskeiðinu læra nemendur um grundvallarlögmál dramatíska frásagna og uppbyggingu kvikmyndahandrita. Skilningur eykst á kvikmyndinni sem sjónrænum frásagnarmiðli og gagnast fólki við að móta hugmyndir sínar og halda utan um þær. Þau lögmál og hugmyndir sem verða til umfjöllunar má þó yfirfæra á hverskyns skáldskap.
Í upphafi skila nemendur inn hugmynd að kvikmynd og eru aðstoðaðir við að þróa hana áfram. Leitast verður við að skapa gagnrýnar og uppbyggjandi umræður um þau verk sem liggja til grundvallar hverju sinni.