

Íslenska 4 | Icelandic 4
Um námskeiðið [information in English below]
Námskeiðið Íslenska 4 er sérsniðið fyrir þig sem ert að halda áfram að læra íslensku.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja upp fjölbreyttan orðaforða daglegs máls. Þú þjálfar alla þætti tungumáls, það er lestur, ritun, skilning og talþjálfun, með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.
Íslenska 4 er framhaldsnámskeið á stigi A2.2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Námsefnið Íslenska fyrir alla 4 er notað auk leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi.
- Áherslur
Þú heldur áfram að læra íslensku sem nýtist í daglegu lífi og sem tengist samfélagsumræðu og þörfum þínum. - Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir fjölbreytta íslensku bæði í samtölum og frásögn.
- Þú kynnist og notar fjölbreyttar aðferðir sem auka sjálfstraust þitt til að tala íslensku.
- Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.
- Málfræðin er áfram kennd og þjálfuð á einfaldan og hagnýtan hátt í tengslum við námsefnið og á grunni þess sem þú hefur þegar lært.
- Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.
Icelandic 4 (A2.2)
In the course, you continue to take confident steps in learning Icelandic.
You will expand your varied vocabulary and build the confidence to use Icelandic in a variety of ways. We focus on comprehension, reading, writing and speaking practice that is useful in everyday life.
About the course
The Icelandic 4 course is tailored for you who are continuing to learn Icelandic.
The course focuses on building a varied vocabulary for everyday language. You will practise all language skills—reading, writing, comprehension and speaking—using a variety of practical methods.
Icelandic 4 is an intermediate course at level A2.2 according to The European Language Framework. The course uses a variety of teaching materials and active student participation to ensure effective and enjoyable learning of Icelandic. The course materials Icelandic for everyone 4 is used in addition to games, cards, supplementary material and various types of electronic aids.
Emphasis
- You continue to learn Icelandic that is useful in daily life and relates to social discourse and your needs.
- We place an emphasis on speech training, and you will practise a variety of Icelandic, both in conversation and narration.
- You learn and use a variety of techniques that boost your confidence in speaking Icelandic.
- All language skills are practised in the Icelandic course: listening, speaking, reading and writing.
- Grammar is taught and practised in a simple and practical way, in relation to the course material and building on what you have already learnt.
- Your skills are assessed at the end of the course and you are given advice on the next steps in your Icelandic studies.