

Gagnrýnin hugsun í grunnskólum
Gagnrýnin hugsun hefur lengi verið áberandi í námskrám og öðrum textum sem skilgreina tilgang og markmið menntunar. Í námskrá grunnskóla er hún til dæmis sérstaklega áberandi sem ein lykilhæfnin sem námskráin hverfist um. Þar er áhersla lögð á að nemendur læri að beita frumkvæði í efnistökum og úrvinnslu, geti greint og unnið úr gögnum, dregið ályktanir og hafi áræði til að leita nýrra lausna og beita röksemdafærslum. Undanfarið hefur áhersla á þennan þátt í kennslu aukist með tilkomu gagnvirkra forrita á netinu sem byggja á skapandi gervigreind. Bæði nemendur og kennarar eru farnir að nýta sér þessi forrit í auknum mæli og er mikið rætt um að þessi notkun þurfi að vera ábyrg og gagnrýnin. Mögulega hefur skólastarf sjaldan staðið frammi fyrir annarri eins áskorun.
Í námskeiðinu verður sérstök áhersla lögð á að fjalla um gagnrýna hugsun sem hæfni og hvernig nemendur geta eflt hana í ólíkum námsgreinum og með fjölbreyttu námsmati. Kennslan fer fram með fyrirlestrum og umræðum, en einnig munu þátttakendur takast á við hagnýt verkefni sem byggja á þeirra eigin fjölbreyttu kennsluaðferðum og námsefni.
Þátttakendur mun kynnast ólíkum skilgreiningum á gagnrýninni hugsun og siðferðilegri hlið hennar, m.a. með greiningu á ábyrgðarhugtakinu. Þá munu þeir einnig æfast í að endurskoða bæði kennsluaðferðir og námsefni til að nýta það betur í að efla gagnrýna hugsun nemenda.