
Öryggisskóli iðnaðarins

Aukið öryggi í bygginga- og mannvirkjagreinum
Öryggi snýst ekki bara um reglur og merkingar – það snýst um fólk, aðstæður og hvernig verkin eru raunverulega unnin.
Á þessu námskeiði kynnumst við nútímalegri nálgun á öryggismál í bygginga- og mannvirkjagreinum, þar sem áherslan færist frá einstaklingnum yfir á kerfin, verkferlana og vinnuumhverfið. Þátttakendur læra að greina hættur og gildrur í skipulagi, spyrja opinna spurninga sem byggja upp traust á verkstað og breyta frávikum í raunveruleg umbótatækifæri.
Námskeiðið byggir ofan á þá öryggisþekkingu sem þátttakendur hafa fyrir og skilar hagnýtum aðferðum sem nýtast strax daginn eftir.
Fyrir stjórnendur, verkstjóra, verkefna-, gæða- og öryggisstjóra, verkkaupa og alla sem hafa áhrif á öryggi og framkvæmd verkefna.
Hefst
11. sept. 2026Tegund
StaðnámDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Öryggisskóli iðnaðarins