Vörustjóri
Hefur þú brennandi áhuga gögnum og vilt taka þátt í að besta vöruúrval framtíðarinnar hjá Útilífi?
Við leitum að kraftmiklum einstaklingi í starf vörustjóra hjá Útilífi. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf hjá fyrirtæki í sókn. Vörustjóri starfar náið með innkaupastjóra í greiningum á vöruúrvali Útilífs.
Útilíf á sér stað í hjarta margra Íslendinga þar sem verslunin hefur verið hluti af áhugamálum og lífsstíl landsmanna í 50 ár. Útilíf rekur tvær íþróttaverslanir í Kringlunni og Smáralindinni ásamt útivistarverslun í Skeifunni 11 og íþrótta- og útivistarmarkaðar í Faxafeni 12.
Þá rekur Útilíf einnig The North Face á Hafnartorgi.
Útilíf er áfangastaður, þar er gott að vera og versla – en er á sama tíma upphaf ævintýra og minninga. Við hvetjum fólk til að fara lengra og stefna að heilbrigðari sál í hraustum líkama, í sátt við umhverfið og samfélagið. Hvert sem markmiðið, áskorunin, íþróttin eða ferðalagið er, þá býður Útilíf upp á búnaðinn og ráðgjöfina til að komast lengra. Við tökum viðskiptavini okkar áfram, erum hvetjandi og hugsum heildstætt um þeirra þarfir og markmið.
Útilíf leggur áherslu á að vera skemmtilegur og metnaðarfullur vinnustaður sem stuðlar að vexti og ánægju starfsmanna.
- Dagleg umsjón og eftirlit með vöruúrvali Útilífs.
- Stýring og eftirlit með framlegð, verðlagningu og birgðum.
- Greiningar á sölu- og birgðarþróun.
- Greiningar á markaði og vöruflokkum.
- Þátttaka í áætlanagerð og eftirlit með áætlun.
- Samskipti við innlenda og erlenda birgja.
- Náið samstarf með innkaupastjóra við greiningu á vöruúrvali og innkaupum.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
- Greiningarhæfni og færni í Excel.
- Þekking og reynsla af PowerBI.
- Framsetning tölulegra gagna.
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar og þjónustulund.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
- Reynsla af Navision og/eða Business Central mikill kostur.
- Áhugi á útivist og hreyfingu.