Talnaglöggur bókari
Viltu reikna með okkur?
RARIK leitar að talnaglöggri og nákvæmri manneskju með bókhaldsreynslu í starf bókara hjá fyrirtækinu. Ef þú býrð yfir afburða samskiptahæfni, vilt vinna með samstilltu teymi og hefur áhuga á að tileinka þér nýjustu tækni í bókhaldi og sjálfvirknivæðingu þá smellpassar þú inn í bókhaldsteymið okkar.
Vinna í teymi sem sér um skráningu og viðhald í bókhaldi RARIK. Helstu verkefni felast í skráningu tekju- og kostnaðarreikninga, samþykktum reikninga og ýmis konar afstemmingarvinnu í bókhaldi. Bókarar okkar þurfa að eiga í góðum samskiptum við lánadrottna, aðstoða samstarfsfólk við samþykkt reikninga, sinna tilfallandi bókhaldsverkefnum og hjálpa til við uppgjörsvinnu.
Við leitum að manneskju sem hefur skilning og reynslu af afstemmingum í bókhaldi, góða þekkingu á bókhaldskerfum og ekki er verra ef viðkomandi hefur reynslu af skýjalausnum. Nauðsynlegt er að hafa greinargóða þekking á Excel og ef þú ert viðurkenndur bókari eða hefur reynslu af störfum á endurskoðunarskrifstofu er það mikill kostur.