Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Ljósmóðir - Heilsugæslan Hvammi

Heilsugæslan Hvammi leitar að ljósmóður sem er tilbúin að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífelldri þróun. Ef þú telur þig vera manneskjuna í starfið, hvetjum við þig eindregið til að senda inn umsókn.

Um er að ræða ótímabundið 50-80% starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst eða eftir nánara samkomulagi.

Heilsugæslan er fjölskylduvænn vinnustaður og góð samvinna er á milli starfstétta. Á stöðinni starfa sérfræðingar í heimilislækningum ásamt hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, sálfræðingum,sjúkraliða, sjúkraþjálfara og riturum. Heilsugæslan Hvammi er staðsett rétt við Smáralindina, með gott aðgengi og stutt í helstu stofnbrautir. Góð samvinna er á milli fagstétta og öflug skemmtinefnd að störfum.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið ljósmóður er mæðravernd og leghálsskimanir ásamt ung- og smábarnavernd.

Mæðravernd er í höndum ljósmæðra og heimilislækna á heilsugæslustöðvum og samráð er haft við fæðingarlækna ef þörf er á. Markmið með mæðravernd heilsugæslunnar er m.a. að stuðla að heilbrigði móður og barns, veita stuðning og ráðgjöf, greina áhættuþætti og veita fræðslu um meðgöngu og fæðingu. 

Markmið ung- og smábarnaverndar er að efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Starfsleyfi sem ljósmóðir
  • Reynsla sem ljósmóðir á heilsugæslustöð er æskileg
  • Reynsla af leghálsskimunum kostur
  • Reynsla við að nota rafræna mæðraskrá
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
Auglýsing stofnuð10. maí 2024
Umsóknarfrestur21. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Hagasmári 5, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar