Reykhólahreppur
Reykhólahreppur
Reykhólahreppur

Lausar kennarastöður við Reykhólaskóla í Reykhólahreppi

Reykhólahreppur auglýsir þrjár stöður kennara við Reykhólaskóla lausar til umsóknar. Auglýst er eftir umsjónarkennara á mið- og elstastig, list- og verkgreinakennara og kennara í skólaíþróttum. Skólinn er samrekinn leik- og grunnskóli með frístund og tónlistardeild undir einu þaki. Í skólanum eru um 50 nemendur. Einkunnarorð skólans eru Vilji er vegur. Nánari upplýsingar um skólann er hægt að sjá á reykholaskoli.is. Reykhólar er sveitarfélag með um 270 íbúa og þar af býr um helmingur þeirra í þéttbýlinu á Reykhólum. Ráðið verður í störfin frá og með 1. ágúst nk.

Vilt þú vera þátttakandi í vaxandi samfélagi þar sem hver rödd skiptir máli?

Vilt þú taka þátt í að byggja upp samfélag þar sem byggt er undir tækfæri til að hafa áhrif? Vilt þú taka þátt í þróun á hringrásarsamfélagi með sjálfbærni að leiðarljósi? Vilt þú vera partur af teymi sem byggir undir framsækið skólastarf? Ert þú orðinn þreytt/ur á að vera fastur í umferð í hraðanum á höfuðborgarsvæðinu?

 

Þá er starf í Reykhólaskóla eitthvað fyrir þig. Reykhólahreppur skartar einstakri náttúrufegurð, sjálfbærri nýtingu auðlinda og góðu mannlífi. Í Reykhólahreppi er öflugt tómstundastarf fyrir börn þar sem hver einstaklingur er mikilvægur og er íþrótta og tómstundastarf barna unnið í samfellu við skólann. Þátttaka í félagslífi fullorðinna einkennist af mörgum frjálsum félagasamtökum og samstarfi við vinnustaði. Staðurinn hentar einstaklega vel fyrir fólk sem stundar útivist, hefur ánægju af náttúrunni og vill hafa áhrif á samfélagið sitt.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samkennsla á miðstigi
  • Samkennsla á unglingastigi
  • Kennsla í list- og verkgreinum, hlutastarf
  • Kennsla í íþróttum og sundi, 35% starf
  • Teymiskennsla með öllum kennurum skólans eftir þörfum
  • Ber ábyrgð á námi- og velferð nemendahópsins
  • Vinna samkvæmt skólastefnu Reykhólaskóla og Reykhólahrepps
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf
  • Metnaður og hæfni til að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum með áherslu á samþættingu og leiðsagnarnám
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi
  • Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
  • Reglusemi og samviskusemi
  • Hefur hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Flutningsstyrkur fyrir starfsfólk sem flytur til Reykhólahrepps
Auglýsing stofnuð29. mars 2024
Umsóknarfrestur30. apríl 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Skólabraut 1, 380 Reykhólahreppur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar