Nox Medical
Nox Medical

Starfsmaður í vöruhúsi

Við leitum að áreiðanlegum, skipulögðum og vandvirkum liðsfélaga til að styrkja vöruhúsateymi Nox Medical. Í þessu hlutverki mun þú sjá um móttöku, skráningu, pökkun og meðhöndlun á vörum, auk þess að taka saman og afgreiða sendingar til viðskiptavina okkar um allan heim.

Nox Medical er leiðandi fyrirtæki á alþjóðavísu í þróun og framleiðslu á lækningartækjum til þess að greina svefnsjúkdóma. Unnið er samkvæmt ítarlegu gæðakerfi á öllum sviðum, þar sem nákvæmni og fagmennska er í fyrirrúmi.

Helstu verkefni:

  • Taka á móti vörum og staðfesta magn og upplýsingar og skrá í birgðakerfi.

  • Pökkun og undirbúningur sendinga, þar með talið skjalavinna fyrir útflutning

  • Halda utan um birgðir og skráningar í Microsoft Business Central.

  • Framkvæma innri móttöku- og gæðaskoðanir á keyptum vörum samkvæmt verklagsreglum.

  • Vinna náið með framleiðslu- og þjónustudeild varðandi sendingar og birgðahald.

  • Viðhalda skipulögðu, hreinu, öruggu vöruhúsi og stuðla að góðu flæði í daglegu starfi

  • Taka virkan þátt í umbótaverkefnum, hagræðingu ferla og sinna öðrum tilfallandi verkefnum eftir þörfum.

Hæfnis- og menntunarkröfur:

  • Nákvæmni í vinnubrögðum og geta til að klára verkefni af fagmennsku.

  • Færni til að fylgja verklagsreglum og sinna skráningum og skjölun.

  • Áhugi á að starfa í umhverfi þar sem gæðakröfur og ferlar skipta miklu máli.

  • Reynsla af vinnu á lager, í vöruhúsi eða birgðastýrðu umhverfi er kostur.

  • Góð enskukunnátta í ræðu og riti.

  • Gott auga fyrir tölum og áhugi á tæknilausnum er kostur.

  • Þekking á Excel og Word er æskileg; reynsla af birgðakerfum eins og Navision og Business Central er kostur.

Umsóknir, ásamt ferilskrá og kynningarbréfi, mega vera á íslensku eða ensku. Kostur er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Við höfum áhuga á hæfileikaríku fólki sem deilir ástríðu okkar fyrir að bæta líf fólks. Nox Medical fagnar fjölbreytileika. Við teljum að grunnurinn að kraftmikilli frumkvöðla starfsemi felist í sanngjörnu og inngildandi vinnuumhverfi. Menning fyrirtækisins okkar byggist á því að leiða saman ólíkar hugmyndir og einstaklinga til að hvetja til nýsköpunnar og samvinnu.

Auglýsing birt14. nóvember 2025
Umsóknarfrestur28. nóvember 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar