Knattspyrnufélagið Valur
Knattspyrnufélagið Valur

Starfsmaður í húsvörslu og þrif

Knattspyrnufélagið Valur óskar eftir duglegum og þjónustulunduðum einstaklingi til að sinna húsvörslu, gæslu og daglegum þrifum í íþróttahúsi félagsins, ásamt þjónustu við iðkendur. Mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með að umgangast börn og unglinga. Handlagni er kostur.

Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu með blöndu af dag- og kvöldvöktum ásamt helgarvinnu. Vinnutími vakta er frá 10-18 eða 12-20 og önnur hver helgi. Óskað er eftir að starfsmaður hefji störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Dagleg þrif á íþróttahúsinu, t.d. íþróttasölum, göngum, anddyri og búningsklefum
  • Aðstoð við iðkendur, börn og unglinga, og afgreiðsla eftir þörfum
  • Þrif á eldhúsi og umsjón með þvottahúsi
  • Umsjón með búnaði, aðstöðu og tækjum
  • Umsjón með rútu frá frístundaheimilum
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur:

  • Sveigjanleiki og góð samskiptafærni, sérstaklega í samskiptum við börn og unglinga
  • Stundvísi, áreiðanleiki og reglusemi
  • Íslenskukunnátta þarf að vera sæmileg
  • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Handlagni er kostur
  • Hreint sakavottorð

Um Val

Valur er eitt sigursælasta íþróttafélag landsins og það sigursælasta þegar tekið er tillit til Íslands- og bikarmeistaratitla í meistaraflokki karla og kvenna í þremur vinsælustu íþróttagreinunum, handknattleik, körfuknattleik og knattspyrnu. Á undanförnum áratugum hefur félagið einbeitt sér að starfi í þessum þremur íþróttagreinum. Valur er félag með ríka hefð fyrir aga, sigurvilja, dugnaði og heilbrigði. Á Hlíðarenda vinna allir að sama markmiði, þ.e. að halda merki Vals hátt á lofti með einkunnarorðunum: Látið aldrei kappið bera fegurðina ofurliði.

Umsóknarfrestur er til og með 5. október 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511-1225

Auglýsing birt17. september 2025
Umsóknarfrestur5. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hlíðarendi 105
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HandlagniPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þrif
Starfsgreinar
Starfsmerkingar