
Náttúrustofa Suðausturlands
Náttúrustofa Suðausturlands er rannsóknastofnun á sviði náttúrufræða. Hún er ein af átta náttúrustofum sem starfræktar eru á Íslandi. Náttúrustofurnar hafa allar sama hlutverki að gegna en þær starfa á mismunandi landssvæðum. Starfssvæði Náttúrustofu Suðausturlands nær frá Mýrdalssandi í vestri og austur í Hvalnesskriður.
Sjá nánar á heimasíðu Náttúrustofu Suðausturlands, www.nattsa.is
Forstöðumaður
Náttúrustofa Suðausturlands auglýsir starf forstöðumanns laust til umsóknar. Stofan er alhliða rannsóknar- og þjónustustofnun í náttúrufræðum og starfar eftir lögum 54/2024 um Náttúrufræðistofnun og náttúrustofur. Starfssvæðið nær yfir Sveitarfélagið Hornafjörð og Skaftárhrepp og er stofan með aðsetur á Höfn og starfsstöð á Kirkjubæjarklaustri. Starfsstöð forstöðumanns getur verið á Höfn í Hornafirði eða Kirkjubæjarklaustri. Árið 2024 voru stöðugildi hjá stofunni 3,8 talsins.
Sjá nánar á heimasíðu Náttúrustofu Suðausturlands, www.nattsa.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi Náttúrustofunnar
- Leiðir rannsóknir og styrkjaöflun á verkefnasviði Náttúrustofunnar
- Fjármál, áætlanagerð og stefnumörkun í samstarfi við stjórn
- Ábyrgð á verkefnasamningum
- Mannauðsstjórn
- Samskipti við stjórnvöld, aðildarsveitarfélög, samstarfsaðila og viðskiptavini
- Veita náttúruverndarnefndum á starfssvæði stofunnar upplýsingar og ráðgjöf á verksviði stofunnar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á sviði náttúrufræða og reynsla af rannsóknum eru skilyrði
- Framhaldsmenntun á sviði náttúrufræða er æskileg
- Haldbær starfsreynsla af umhverfis- og náttúrufræðistörfum
- Reynsla af styrkumsóknum og sjálfstæði í starfi
- Stjórnunar- og rekstrareynsla er kostur
- Forystu-, skipulags- og samskiptahæfileikar
- Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Hæfni í ræðu og riti á íslensku og ensku
- Frumkvæði og metnaður í starfi
Auglýsing birt24. október 2025
Umsóknarfrestur17. nóvember 2025
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Litlabrú 2, 780 Höfn í Hornafirði
Klaustursvegur 4
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar




