
Vegagerðin
Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Deildarstjóri umsjónardeildar á Austursvæði
Við leitum að öflugum einstaklingi í starf deildarstjóra umsjónardeildar á Austursvæði. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur í sér verkefnastýringu nýframkvæmda og viðhalds á starfssvæði Vegagerðarinnar á Austursvæði.
Umsjónardeild ber ábyrgð á umsjón og eftirliti með framkvæmdum á svæðinu. Í samráði við mannvirkjasvið sinnir deildin viðhaldi bundinna slitlaga, styrkingum og endurbótum ásamt efnisvinnslu á svæðinu. Svæðismiðstöð Vegagerðarinnar er á Reyðarfirði og hægt verður að nýta starfsaðstöðu þjónustustöðvarinnar í Fellabæ.
Helstu verkefni og ábyrgð
Deildarstjóri leiðir starfsemi umsjónardeildar og sýnir gott fordæmi í öryggismálum. Deildarstjóri hefur yfirsýn yfir stöðu verkefna, framvindu þeirra og kostnað.
- Yfirumsjón með nýframkvæmdum og öðrum framkvæmdum sem svæðinu eru falin, þannig að farið verði eftir útboðslýsingum, stöðlum og verklýsingum.
- Umsjón með framkvæmdum umferðaröryggisaðgerða og viðhaldi varnargarða.
- Gerð viðhaldsáætlana og umsjón með slitlagabanka.
- Umsjón með viðhaldi brúa og varnargarða, áætlanagerð og framkvæmd.
- Umsjón með efnisvinnslu ásamt efniskaupum á svæðinu.
- Mælingar tengdar framkvæmdum, s.s. útsetningar, framkvæmda- og úttektarmælingar og kostnaðareftirlit.
- Undirbúningur og áætlanagerð þeirra verkefna sem deildinni eru falin.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Verk- eða tæknifræðingur eða annað háskólapróf sem nýtist í starfi.
- Reynsla af verkefnastjórnun á sviði jarðvinnuframkvæmda.
- Þekking á landsvæði kostur.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Hæfni til að leiða teymi.
- Frumkvæði og faglegur metnaður.
- Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi.
- Góð öryggisvitund.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
Auglýsing birt6. maí 2026
Umsóknarfrestur26. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Búðareyri 11, 730 Reyðarfjörður
Smiðjusel 1, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri á Verkefnastofu
Norðurorka hf.

Verkefnastjóri fjárfestinga
Rio Tinto á Íslandi

Sérfræðingur í þróun virkjana
Orkusalan

Véltæknifræðingur, Vélaverkfræðingur
Stálvík ehf

Avionics/Modifications Engineer
Air Atlanta Icelandic

Verkefnastjóri rekstrar
Landsvirkjun

Deildarstjóri óskast í afleysingu
Frístundamiðstöðin Þorpið

Deildarstjóri framleiðslustýringar
Orka náttúrunnar

Gatna- og veghönnuður
exa nordic

Sérfræðingur í orkumiðlun
Orkusalan

Samningastjóri
Veitur

Sérfræðingur í áætlanagerð hjá Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi