
BL ehf.
BL er eitt stærsta og elsta bílaþjónustufyrirtæki landsins og nær saga okkar allt aftur til ársins 1954.
Á þeim tíma hafa bílar og bílaframleiðsla breyst gríðarlega og sjaldan hefur þróunin verið jafn spennandi og einmitt núna þegar nýir möguleikar eru að opnast til að koma okkur hratt og örugglega milli staða í sem mestri sátt við umhverfið og náttúruna.
Á fimm starfsstöðvum rekum við umboð fyrir fólks- og atvinnubíla frá 12 framleiðendum og starfrækjum vottuð þjónustu-, málningar- og réttingaverkstæði sem eru ein þau fullkomnustu á landinu. Við leggjum áherslu á góða starfsaðstöðu og starfsanda og hjá okkur er öflugt starfsmannafélag. BL er með jafnlaunavottun og við erum fyrirmyndarfyrirtæki VR.
Hvort sem þú leitar að tímabundnu starfi eða hyggur á fagmenntun til framtíðar þá færðu frábært tækifæri hjá BL til að kynnast nýjustu tækni og öðlast reynslu í einhverri mikilvægustu og fjölbreyttustu atvinnugrein samtímans í návígi við marga af fullkomnustu og glæsilegustu bílum heims.

Aðstoðarverkstjóri
Brennur þú fyrir framúrskarandi þjónustu og ert frábær í mannlegum samskiptum?
Við óskum eftir að ráða metnaðarfullan og faglegan aðstoðarverkstjóra sem býr yfir mikilli þjónustulund og framúrskarandi leiðtogahæfileikum.
Aðstoðarverkstjóri ber ábyrgð á daglegri verkstjórn ásamt verkstjóra og að unnið sé í samræmi við kröfur framleiðenda.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Samskipti við starfsmenn og viðskiptavini
- Úthlutun verkefna til bifvélavirkja
- Eftirlit með gæðakröfum og framkvæmd verkefna
- Samvinna við bifvélavirkja og tæknimenn
- Aðstoð við ákvarðanatöku
- Samskipti við viðskiptavini og miðlun upplýsinga um stöðu mála
- Umsjón með verkfærum og verkstæðisaðstöðu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í bifvélavirkjun kostur
- Nokkurra ára starfsreynsla í faginu
- Góð þekking og reynsla af rafmagns- og hybrid-bílum
- Leiðtogahæfileikar og góð þjónustulund
- Sjálfstæði og frumkvæði
- Fagleg og nákvæm vinnubrögð
- Skipulagshæfni
- Mjög góð tölvufærni
- Ökuréttindi
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði
Fríðindi í starfi
- Afsláttarkjör af bílum, aukahlutum, varahlutum ofl.
- Afsláttur af leigu á bílum Hertz
- Mötuneyti með heitum mat
- Afsláttur á hleðslustöðvum Ísorku
- Íþróttastyrkur
Auglýsing birt9. júní 2026
Umsóknarfrestur26. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Sævarhöfði 2, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Campervan Mechanic
Indie Campers

Verkstjóri á þjónustustöð, Patreksfjörður
Vegagerðin

Kennari í bíliðngreinum við Borgarholtsskóla
Borgarholtsskóli

Viðgerðarmaður á verkstæði
Garðlist ehf

Stjórnandi í framkvæmdum
Ístak hf

Aðstoðarverkstjóri í tiltekt
Parlogis

Akstursstjóri gámaaksturs - Höfuðborgarsvæðið
Eimskip

Bifvélavirki/Auto mechanic
Bílaver ÁK ehf.

Bifvélavirki óskast á vörubifreiða verkstæði Krafts
Kraftur hf.

Verkstjóri á byggingarstað
TILDRA Byggingafélag ehf.

Viðgerðarmaður
Vélavit ehf

General Maintenance / Engineering Supervisor
The Reykjavik EDITION