

Vörustjóri hugbúnaðarlausna
Við leitum að metnaðarfullum og öflugum vöru- og verkefnastjóra með tæknilegan bakgrunn og brennandi áhuga á heilbrigðismálum til að sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum á sviði heilbrigðis- og upplýsingatækni á Landspítala. Vörustjórar sinna framþróun hugbúnaðarkerfa, rekstri, þjónustu, samskiptum við birgja og samstarfsfólk í tengslum við framþróun nýrra lausna í samráði við klínískar deildir. Hann vinnur jafnframt að framþróun og hagnýtingu tækni og ferla til að tryggja aðgangsheimildir notenda, jafn innan sem utan Landspítala.
Hugbúnaðarlausnir tilheyra Stafrænni framþróun innan Mannauðs- og rekstrarsviðs á Landspítala og bera ábyrgð á öflun, framþróun og rekstri hugbúnaðarlausna. Í Stafrænni framþróun starfa um 70 einstaklingar og er markmið deildarinnar að styðja við þróun heilbrigðisþjónustu framtíðarinnar og veita framúrskarandi þjónustu við klíníska starfsemi.
- Vöru- og verkefnastýringu og samskipti við birgja og aðra hagaðila
- Ábyrgð á framþróun og rekstri heilbrigðislausna spítalans
- Gerð vegvísa (e. Roadmaps) í samstarfi við notendur, birgja og aðra hagaðila
- Ábyrgð á uppsetningu á nýjum útgáfum og skipulagningu á innleiðingu þeirra
- Verkefni tengd þarfagreiningu, vali, uppsetningu og innleiðingu hugbúnaðarkerfa
- Umfangsmat og áætlanagerð (tími, kostnaður, fólk og árangursmælikvarðar)
- Náin samvinna og ráðgjöf við notendur á klínískum sviðum spítalanum
- Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærileg menntun
- Þekking og reynsla af innleiðingu, rekstri og þjónustu við hugbúnaðarkerfi
- Þekking og reynsla af þarfagreiningum og samþættingu hugbúnaðarkerfa
- Reynsla af samskiptum við hagaðila og miðlun upplýsinga
- Reynsla af teymisvinnu og/eða vörustjórnun æskileg
- Mikil samskiptahæfni, jákvæðni og þjónustulund
- Drifkraftur, sjálfstæði og ástríða fyrir verkefninu og áhugi á að takast á við nýjar áskoranir
- Frumkvæði og skipulagshæfni, leitast við stöðugar umbætur
Icelandic
English









































