
Veitur
Veitur eru framsækið þjónustufyrirtæki sem tengja samfélagið við rafmagn, hita, hreint vatn og fráveitu. Með nýsköpun og samstarfi veitum við lífsgæði til framtíðar. Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og þjónustar ríflega 70% landsmanna. Við setjum viðskiptavininn í fyrsta sæti og erum stöðugt að bæta okkur og finna leiðir til þess að þjónusta viðskiptavini okkar enn betur.
Til að vita meira um hvernig er að starfa hjá Veitum er tilvalið að heimsækja heimasíðuna okkar, www.veitur.is/vinnustadurinn.

Viltu vinna við veitukerfi okkar á Vesturlandi?
Við leitum að jákvæðum og framtakssömum einstaklingi til starfa í viðhaldsteymi Veitna á Vesturlandi.
Starfið felur í sér fjölbreytt og krefjandi verkefni á veitusvæði Veitna á Vesturlandi, með áherslu á Stykkishólm og Grundarfjörð. Bakvaktir eru hluti af starfinu. Starfsstöð er í Stykkishólmi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Viðhald og viðgerðir á dreifikerfi vatns- og hitaveitu
- Rekstur og viðhald á borholum, vatnsbólum, bakvatns- og dælustöðvum
- Tenging og eftirlit með stofn- og heimlögnum
- Skipulagning og framkvæmd verkefna í samvinnu við viðskiptavini, verktaka og aðra hagaðila
- Þátttaka í þróun á kerfum og ferlum er við kemur vinnuflokk sem og rekstri
- Skráning og skýrslugerð í starfrænum kerfum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í vélvirkjun, vélstjórn, pípulögnum eða sambærileg iðngrein
- Rík öryggisvitund
- Heiðarleiki, jákvæðni og lipurð í samskiptum
- Frumkvæði, umbótahugsun og útsjónarsemi
- Góð tölvukunnátta og vilji til að læra og tileinka sér nýja hluti
Advertisement published20. January 2026
Application deadline10. February 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Snæfellsnes
Type of work
Skills
ReliabilityDriveProactiveWorking under pressureCustomer service
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Vélvirki
Klettur - sala og þjónusta ehf

Verkstæðismaður óskast
Jón og Margeir ehf.

Starfsmaður í bifreiðaskoðun á Akranesi
Frumherji hf

Starfsmaður í bifreiðaskoðun Reykjanesi
Frumherji hf

Starfsmaður í bifreiðaskoðun Höfuðborgarsvæði
Frumherji hf

Suðumenn / Welders
VHE

Selfoss - Starfsmaður tæknideildar, fullt starf
Mjólkursamsalan

Vélvirki / Vélstjóri - þjónustudeild
Fálkinn Ísmar

Bifvélavirki fyrir Saga car rental í Keflavík
Saga Car Rental

Bifvélavirki fyrir Max1/Vélaland
MAX1 | VÉLALAND

Kennari í vélstjórnargreinum á A- og B-stigi
Menntaskólinn á Ísafirði

Rafvirkjar og vélvirkjar
Norðurál