Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja

Viltu díla við bíla?

Bifvélavirkjar óskast til starfa hjá Öskju

Við leitum að öflugum bifvélavirkjum til að ganga til liðs við sérhæfðan og öflugan hóp á bifvélaverkstæðum Öskju. Boðið er upp á úrvals vinnuaðstöðu til þjónustu og viðgerða í húsnæði Öskju við Krókháls 11 og 13 í Reykjavík og Njarðarbraut 11, Reykjanesbæ.

Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja. Askja er dótturfélag Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllina í London. Inchcape er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði, starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Bilanagreiningar með sérhæfðum greiningartækjum
  • Viðhald og viðgerðir samkvæmt stöðlum framleiðenda
  • Framkvæmd þjónustuskoðana
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í bifvélavirkjun og/eða reynsla við bílaviðgerðir æskileg
  • Góð tölvukunnátta og áhugi á nýrri tækni
  • Sterk þjónustulund
  • Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
Af hverju að vinna með okkur?
  • Vertu hluti af hratt vaxandi, alþjóðlegu fyrirtæki með þekkt bílamerki
  • Starfaðu með stuðningsríku og samvinnuþýðu teymi sem leggur áherslu á nýsköpun, fjölbreytileika og faglegt vinnuumhverfi
  • Tækifæri til að þróa feril þinn innan alþjóðlegs fyrirtækis
Advertisement published27. March 2026
Application deadline8. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Krókháls 13, 113 Reykjavík
Njarðarbraut 11A, 260 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.TroubleshootingPathCreated with Sketch.Auto repairs
Professions
Job Tags