Jötuntak ehf.
Jötuntak ehf.
Jötuntak ehf.

Við leitum að öflugum húsasmið

Leitað er að áreiðanlegum og sjálfstæðum húsasmið til fjölbreyttra verkefna við almennt viðhald, endurbætur og nýsmíði. Starfið felur meðal annars í sér almenna smíðavinnu, uppsetningu veggja, lofta, gólfefna, hurða, glugga, innréttinga og klæðninga ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.

Sveinspróf er æskilegt, en góð og víðtæk starfsreynsla getur komið í stað menntunar. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt, lesið teikningar, skipulagt eigin verkefni og skilað vönduðum frágangi. Bílpróf er skilyrði. Við leggjum áherslu á stundvísi, góða samvinnu, jákvætt viðhorf og örugg vinnubrögð.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Frumkvæði og hæfni til að leysa vandamál á verkstað.
Nákvæmni og metnaður fyrir góðum frágangi.
Áreiðanleiki og stundvísi.
Góð samskipta- og samstarfshæfni.
Hæfni til að vinna við fjölbreyttar aðstæður.
Líkamlegt úthald til almennra byggingarstarfa.
Jákvætt viðhorf og vilji til að takast á við ólík verkefni.
Virðing fyrir eignum og umhverfi viðskiptavina.

Menntunar- og hæfniskröfur

Sveinspróf eða meistarabréf í Húsasmíði

Advertisement published11. August 2026
Application deadline22. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Hraunsvegur 10, 260 Reykjanesbær
Type of work
Professions
Job Tags