Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar

Verkstjóri á bílaverkstæði - Keflavíkurflugvelli

Bílaleiga Akureyrar leitar að öflugum verkstjóra til að leiða daglegan rekstur verkstæðis fyrirtækisins á Keflavíkurflugvelli.

Verkstæðið þjónustar eingöngu bílaflota Bílaleigu Akureyrar sem er bæði stór og fjölbreyttur.

Á fyrri hluta næsta árs flytur hluti starfseminnar í nýja starfsstöð með bættri aðstöðu. Um er að ræða áhugavert tækifæri fyrir nýjan stjórnanda til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu starfseminnar, styrkja samstarf milli deilda og starfsstöðva og stuðla að skilvirkum verkferlum og lausnum.

Vinnutími er 08:00-17:00 virka daga.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg verkstjórn
  • Viðhald og viðgerðir á bílum
  • Bilanagreining
  • Smurþjónusta
  • Dekkjaskipti
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af verkstjórn og mannaforráðum
  • Sveinspróf í bifvélavirkjun eða mikil reynsla af viðhaldi og viðgerðum bíla
  • Góð leiðtoga- og samskiptahæfni
  • Reynsla af skipulagningu verkefna og forgangsröðun vinnu
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Almenn tölvukunnátta
  • Gild ökuréttindi
  • Jákvæðni, stundvísi og metnaður
Höldur - Bílaleiga Akureyrar

Höldur ehf. var stofnað árið 1974 og rekur Bílaleigu Akureyrar, stærstu bílaleigu landsins með um 8.000 bíla flota.  Bílafloti leigunnar er bæði stór og fjölbreyttur og hefur fyrirtækið verið leiðandi í kaupum á umhverfisvænum bílum.

Höldur kappkostar að vera framúrskarandi vinnustaður þar sem umhyggja er borin fyrir sérhverjum starfsmanni. Með áherslu á gleði, jafnrétti, gott starfsumhverfi, starfsþróun og góða fyrirtækjamenningu er skapaður eftirsóknarverður vinnustaður.

Advertisement published13. August 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.MechanicPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Oil change
Work environment
Professions
Job Tags