Rennsli ehf.
Rennsli ehf.

Verkefna- og rekstrarfulltrúi

Verkefna- og rekstrarfulltrúi

Rennsli ehf. pípulagningaverktaki óskar eftir að ráða öflugan og skipulagðan einstakling í fjölbreytt starf sem snýr að verkefnaumsjón, rekstri og skrifstofuhaldi. Starfið felur í sér halda utan um upplýsingar, vinna með tölur og fylgja verkefnum eftir í nánu samstarfi við stjórnendur og verkefnastjóra.

Fyrirtækið nýtir gervigreind markvisst og mun viðkomandi gegna þýðingarmiklu hlutverki við að þróa áfram þau vinnubrögð. Leitað er að einstaklingi sem vill verða hluti af teyminu til framtíðar og taka virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins.

Reynsla úr byggingariðnaði eða verktakastarfsemi er kostur en ekki skilyrði.


Helstu verkefni:

  • Gerð og frágangur tilboða og útboðsgagna
  • Yfirferð magntalna, framvindureikningar og uppgjör verka
  • Samskipti við verkkaupa, aðalverktaka, verkeftirlit og hönnuði
  • Stuðningur við bókhald og utanumhald með tímaskráningum
  • Innkaup og samskipti við birgja
  • Aðstoð við ráðningar og önnur mannauðsmál
  • Skjalastýring, þróun og einföldun verkferla, meðal annars með nýtingu gervigreindar
  • Önnur verkefni tengd daglegum rekstri og skrifstofuhaldi

Hæfni og eiginleikar

  • Skipulögð og nákvæm vinnubrögð
  • Skilningur á tölum, geta til að fylgja verkefnum eftir og hafa góða yfirsýn
  • Mjög góða íslenskukunnáttu í ræðu og riti
  • Góð tök á Microsoft 365, sérstaklega Excel og Outlook
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund
  • Frumkvæði og áhugi á að tileinka sér ný kerfi og vinnubrögð
  • Þekking á Claude, Microsoft Copilot eða sambærilegum tólum er kostur
  • Þekking á Business Central, Procore, Tímon, SharePoint eða sambærilegum kerfum er kostur

Við bjóðum uppá:

  • Fullt starf hjá rótgrónu fyrirtæki í vexti
  • Fjölbreytt verkefni og mikið sjálfstæði
  • Tækifæri til að móta starfið og taka aukna ábyrgð
  • Tækifæri til að taka þátt í þróun verkferla og innleiðingu nýrrar tækni
  • Gott og styðjandi starfsumhverfi
  • Laun í samræmi við reynslu og hæfni

Umsóknarfrestur er til og með 28. október 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Vilborg Þórðardóttir ([email protected]) í síma 511 1225.

Advertisement published12. October 2026
Application deadline28. October 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Kistumelur 11, 116 Reykjavík
Akralind 1, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Artificial intelligencePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.SharePointPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags