Steypustöðin
Steypustöðin
Steypustöðin

Vélamaður á hjólaskóflu

Steypustöðin í Hafnarfirði leitar að sterkum, nákvæmum og drífandi einstaklingi í fullt starf. Ef þú hefur reynslu af akstri hjólaskóflu, vinnur vel í hópi og ert tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni, þá gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig.

Starfið felst að mestu í vinnu á hjólaskóflu og umsjón með lóð fyrirtækisins. Viðkomandi mun þjónusta steypuframleiðslu og flotdeild Steypustöðvarinnar, ásamt því að aðstoða helludeild eftir þörfum. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem vill vera hluti af góðu teymi og hefur vilja til að takast á við nýjar og fjölbreyttar áskoranir.

Við hvetjum öll kyn og þjóðerni til að sækja um. Um framtíðarstarf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sjá um mokstur sands og annarra steinefna í steypustöð
  • Halda plönum og lóð snyrtilegri og hreinni
  • Moka í sandsíló fyrir flotdeild
  • Aðstoða helludeild eftir þörfum
  • Afgreiða steinefni til viðskiptavina í kerrur
  • Sinna almennu viðhaldi á hjólaskóflu
  • Halda hjólaskóflu hreinni og snyrtilegri og tilkynna um bilanir eða viðhaldsþörf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af akstri hjólaskóflu
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð samstarfshæfni og jákvætt viðmót
  • Góð öryggisvitund
  • Meirapróf er kostur
Fríðindi í starfi
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Námskeið og fræðsla
  • Hádegismatur
  • Jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi
  • Fjölbreytt verkefni
Advertisement published31. March 2026
Application deadline12. April 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hringhella 2, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Customer checkoutPathCreated with Sketch.Driver's license CPathCreated with Sketch.Heavy machinery license
Professions
Job Tags