
Avis og Budget
Bílaleiga Avis rekur rætur sínar allt aftur til ársins 1946, til borgarinnar Detroit í Michigan. Í dag er bílaleiga Avis heimsþekkt alþjóðlegt fyrirtæki sem starfar í meira en 165 löndum. Avis á Íslandi hefur verið starfandi síðan 1987 og er í dag ein stærsta bílaleiga landsins.
Hjá Avis á Íslandi starfa um 100 manns um land allt með höfuðstöðvar í Reykjavík. Avis er fjölbreyttur og skemmtilegur vinnustaður sem leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu.
Fyrirtækið hlaut jafnlaunavottun 2021 og fjöldann allan af ferðaviðurkenningum.

Vef- og markaðssérfræðingur
Ertu skapandi, skipulagður einstaklingur og með puttann á púlsinum í stafrænum miðlum?
Avis á Íslandi leitar að drífandi vef- og markaðssérfræðingi sem hefur góð tök á Google Ads, Meta-umhverfinu og á auðvelt með að tileinka sér og vinna í ólíkum vefumsjónarkerfum (CMS).
Heldur utan um vefmál, auglýsingaherferðir í gegnum stafræna miðla.
Starfið hentar vel markaðssérfræðingi með reynslu sem vill hafa áhrif og taka þátt í að efla sýnileika og viðveru öflugs vörumerkis í ferðamannaiðnaðinum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýra og hámarka Google Ads herferðir - Leitaorðagreining, textasköpun, prófanir og skilvirk nýting á markaðsfé.
- Meta (Facebook/Instagram) - Setja upp og fylgja eftir herferðum.
- Textagerð og efnissköpun - Skrifa skemmtilega og áhrifaríka pósta fyrir samfélagsmiðla og annað markaðsefni (íslenska og enska).
- Vefumsjón og uppfærslur - Halda vefunum uppfærðum og tryggja góða notendaupplifun.
- Samvinna og verkefnastýring - Vinna með markaðsstjóra að þróun hugmynda, herferða og mælanlegra markmiða.
- Greining og skýrslugerð - Fylgjast með frammistöðuvísum og útbúa skýrslur til að styðja við gagnadrifnar ákvarðanir.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af Google Ads og Meta Business Suite er skilyrði
- Góð ritfærni á bæði íslensku og ensku
- Þekking á leitarvélabestun (SEO) og vefefnisgerð er kostur
- Grunnfærni í hönnun er kostur.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, skipulag og lausnamiðuð hugsun
- Geta til að vinna sjálfstætt.
Advertisement published2. June 2025
Application deadline20. June 2025
Language skills

Required

Required
Location
Holtagarðar, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
AdWordsEmail marketingFacebookGoogle AnalyticsInstagramSearch Engine Optimization (SEO)Online marketing
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (12)

Verkefnastjóri á fasteignasviði
Bláa Lónið

Sölu og markaðsfulltrúi
aha.is

Viltu vera hluti af góðri liðsheild ?
Faxaflóahafnir sf.

Leiðtogi starfsstöðvar COWI á Akureyri
COWI

Tilboðsgerð
ÍAV

MSS leitar að verkefnastjóra
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

Verkefnastjóri
ÖBÍ

Verkefnastjóri framkvæmda
Borealis Data Center ehf.

Markaðsstjóri
Hagvangur

Forstöðumaður þróunar- og þjónustusviðs
Ferðamálastofa

Verkefnastjóri Öryggisþjónustu
Öryggismiðstöðin

Grafískur hönnuður
Íslandshótel