
Vatnsendaskóli
Í Vatnsendaskóla er lögð rík áhersla á fjölbreytta kennsluhætti og einstaklingsmiðað nám. Áhersla er lögð á umhverfis-, rannsóknar- og vettvangsnám. Gildi skólanámskrár byggjast á virðingu, vináttu, samvinnu og skapandi skólastarfi. Sérstök áhersla er lögð á náttúrufræði og raungreinar og útikennsla er ríkur þáttur í skólastarfinu þar sem skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi við Elliðavatn.
Í Vatnsendaskóla er litið á hvern árgang sem eina heild. Kennarar árgangsins bera sameiginlega ábyrgð á nemendum og vinna saman að því að skipuleggja nám nemenda. Þetta fyrirkomulag stuðlar að sveigjanleika og býður upp á möguleika að breyta hópum í samræmi við viðfangsefni og aukna samkennslu þar sem það á við. Þannig nýtist styrkur og hæfni starfsfólks nemendum.

Vatnsendaskóli leitar að heimilisfræðikennara í 50% starf
Vatnsendaskóli leitar að jákvæðum og áhugsömum kennara í heimilisfræði skólaárið 2026-2027. Um er að ræða 50% starf á á yngsta- og miðstig .
Vatnsendaskóli er heildstæður grunnskóli með um 520 nemendur og tæplega 90 starfsmenn. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi við Elliðavatn. Áhersla er lögð á teymiskennslu, útikennslu og fjölbreytta kennsluhætti. Góður starfsandi er í skólanum og vinnuaðstæður góðar. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og er Vatnsendaskóli Réttindaskóli Unicef. Einkunnarorð skólans eru virðing, vinátta, samvinna og skapandi starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Kennsla í heimilisfræði á yngsta- og miðstigi
- Vinna að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsfólki.
- Stuðla að velferð nemenda.
- Þátttaka í teymisvinnu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennsluréttindi
- Menntun og hæfni til að kenna heimilisfræði.
- Góð hæfni í samskiptum við börn og fullorðna.
- Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Stundvísi og áreiðanleiki skilyrði.
- Góð færni í íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
Fríðindi í starfi
Starfsmenn Kópavogsbæjar fá frían aðgang í sundlaugar bæjarins.
Advertisement published21. July 2026
Application deadline4. August 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Funahvarf 2, 203 Kópavogur
Type of work
Skills
PositivityTeachingPatience
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Deildarstjóri
Heilsuleikskólinn Urriðaból I

Deildarstjóri óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Leikskólinn Tröllaborgir: Deildarstjóri
Akureyri

Leikskólakennarar og annað starfsfólk óskast í Krikaskóla
Krikaskóli

Sérkennari í Kársnesskóla
Kársnesskóli

Umsjónarkennari á miðstig í Kársnesskóla
Kársnesskóli

Deildarstjóri Leikskólastigs (Aðstoðarleikskólastjóri)
Barnaskóli Kársness

Laus störf: leikskólakennari/leiðbeinandi
Leikskólinn Tjarnarskógur

Kennari - Leikskólinn Álfasteinn
Hafnarfjarðarbær

Kennari óskast í leikskólann Nóaborg
Leikskólinn Nóaborg

Kennarastöður við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Grunnskóli Reyðarfjarðar