
Sameyki
Sameyki er stærsta stéttarfélag opinberra starfsmanna á Íslandi og þjónar um 16 þúsund einstaklingum. Félagsfólk Sameykis er með búsetu um land allt. Hjá félaginu starfar jákvætt starfsfólk með mikla þekkingu og reynslu.

Upplýsingafulltrúi
Sameyki – stéttarfélag í almannaþjónustu – óskar eftir að ráða metnaðarfullan og skapandi upplýsingafulltrúa til starfa. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á samfélagsmálum og býr yfir sterkri samskipta- og miðlunarhæfni. Um er að ræða fjölbreytt og áhrifamikið starf fyrir einstakling sem vill taka virkan þátt í að móta ímynd félagsins, efla sýnileika þess og tryggja gott upplýsingaflæði til félagsfólks og almennings. Upplýsingafulltrúi vinnur náið með formanni, framkvæmdastjóra og teymi félags-, kynningar- og fræðslumála.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stefnumótun í upplýsingagjöf í samvinnu við formann og framkvæmdastjóra
- Umsjón með fréttum á vef og samfélagsmiðlum Sameykis (t.d. Facebook og Instagram)
- Samskipti við fjölmiðla og þátttaka í opinberri umræðu
- Greina- og fréttaskrif fyrir tímarit Sameykis og fjölmiðla
- Ritstjórn og útgáfa tímarits Sameykis, veffréttabréfs og annarra rita, s.s. ársskýrslu
- Verkstjórn við gerð ársskýrslu
- Vöktun samfélagsmiðla og greining á umræðu
- Ráðgjöf og þátttaka í grafískri framsetningu efnis fyrir vef- og prentmiðla
- Umsjón með stafrænu mynda- og myndbandasafni Sameykis
- Þátttaka í teymisvinnu vegna sérstakra verkefna, s.s. Stofnun ársins og aðalfunda
- Önnur verkefni eftir því sem þörf krefur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólanám eða sambærileg menntun, þekking og starfsreynsla sem nýtist í starfi
- Mjög góð tölvukunnátta
- Mjög góð þekking á upplýsingamálum, fréttaritun, vefmiðlum og útgáfustarfsemi
- Reynsla af starfi fyrir fjölmiðla er mikill kostur
- Afburða hæfni í rituðu og töluðu máli á íslensku og mjög góð kunnátta í ensku
- Frumkvæði, sjálfstæði og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Fríðindi í starfi
Við bjóðum:
- Fjölbreytt starf hjá öflugu stéttarfélagi
- Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á ímynd og umræðu um málefni almannaþjónustu
- Gott samstarf og teymisvinnu
- Starf sem krefst frumkvæðis, sköpunar og fagmennsku
Advertisement published1. April 2026
Application deadline20. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Grettisgata 89, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (6)

Sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu
Icelandia

Menningarritstjóri
RÚV

Fréttamaður á fréttastofu Sýnar
Sýn

Verkefnastjóri fræðslu og miðlunar
Sláturhúsið menningarmiðstöð

AI-Driven Growth Marketing Manager
PLAIO

Markaðsstjórn með áherslu á leitarvélabestun, netauglýsingar og samfélagsmiðla
Þorbergsson og Loftsdóttir sf.