
Vegagerðin
Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Umsjónarmaður véla og tækja
Við leitum að fjölhæfum einstaklingi til að bætast í hópinn hjá véla og tækjateyminu á rekstrardeild Vegagerðarinnar.
Á rekstrardeild starfa um 14 manns og þar af þrír í vélum og tækjum. Rekstrardeild er þjónustudeild þar sem mikið er lagt upp úr góðri liðsheild, ríkri þjónustulund og lausnamiðaðri nálgun. Deildin þjónustar verkstæði Vegagerðarinnar um allt land, ásamt fasteignum, vöruinnkaupum og birgðastýringu. Vegagerðin er með 18 starfsstöðvar, starfsemi rekstrardeildar er í Garðabæ.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Útvega varahluti í vélar og tæki, í samráði við verkstæðisformenn og yfirverkstjóra á þjónustustöðvum.
- Ráðgjöf og fræðsla um umhirðu og notkun tækjabúnaðar Vegagerðarinnar.
- Eftirlit með notkun og viðhaldi tækjabúnaðar Vegagerðarinnar.
- Aðstoð við gerð viðhaldsáætlana fyrir tækjabúnað.
- Ástandsskoðun á vélum og tækjum á starfsstöðvum Vegagerðarinnar.
- Almenn verkefni tengd rekstri véla og tækja.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þekking á vélum og tækjabúnaði, einkum þeim er varða vegaþjónustu s.s. vegheflum, dreifurum, snjótönnum ásamt vökvakerfum og varahlutum er æskileg.
- Sveinspróf í vélvirkjun, bifvélavirkjun, eða sambærileg menntun er kostur.
- Mikil samskiptafærni, lausnamiðuð nálgun, hæfni til að vinna sjálfstætt og í hóp.
- Almenn ökuréttindi, C- og E-réttindi eru kostur.
- Hæfni til að nota tölvur og stafrænar lausnir í starf.
- Gott vald á íslensku og ensku.
- Góð öryggisvitund.
Advertisement published4. November 2026
Application deadline16. November 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Tæknimaður / Technician
Icelandic Glacial

Kælivélamaður / Vélfræðingur
Hitastýring hf.

Véla- og tækjavörður
Tækniskólinn

Umsjónarmaður - Umsjón fasteigna
Félagsstofnun stúdenta

Óskum eftir vélvirkja
Trefjar ehf

Stálvilji ehf óskar eftir vélvirkja eða stálsmið í framtíðarstarf
Stálvilji ehf

TÆKNIMAÐUR Í TÆKNIDEILD BVT
Bako Verslunartækni

SÉRFRÆÐINGUR Í VIÐHALDSDEILD AKUREYRI
Mjólkursamsalan

Vélvirki á vélaverkstæði Orku náttúrunnar
Orka náttúrunnar

Tæknistjóri hjá MAN á Íslandi óskast.
Kraftur hf.

Hefur þú áhuga á vél- og kælikerfum?
atNorth

Snillingar á Vörubílaverkstæði
Vélaverkstæði Þóris ehf.