Dagar hf.
Dagar hf.
Dagar hf.

Umsjónarmaður fasteigna á Akureyri

Dagar leita að öflugum, skipulögðum og lausnamiðuðum einstaklingi í fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf umsjónarmanns fasteigna. Starfið snýr að daglegum rekstri, viðhaldi og öryggismálum fasteigna, ásamt verkstjórn og samskiptum við eigendur, leigjendur og verktaka.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Daglegur rekstur fasteigna, þ.m.t eftirlit með húsnæði, lóðum og tæknikerfum. 

  • Gerð viðhalds- og kostnaðaráætlana og eftirfylgni 

  • Skipulagning og verkstjórn framkvæmda og tilfallandi sérverkefna 

  • Samskipti við eigendur, leigjendur og verktaka 

  • Þróun og framkvæmd verklags og fyrirbyggjandi viðhalds fasteigna 

  • Bregðast við frávikum og sinna almennu viðhaldi og viðgerðum 

  • Umsjón og eftirlit með öryggismálum, s.s. eldvörnum, rýmingum, viðbragðsáætlunum, aðgengi, öryggisgæslu o.fl., og stefnumótun í öryggismálum 

  • Tryggja að unnið sé eftir gerðum samningum á milli eigenda, leigjenda, þjónustuaðila og verktaka 

  • Reikningasamþykktir og reikningagerð í samstarfi við fjármálasvið 

  • Tryggja að fasteignir fylgi settum umhverfisstefnum og veita aðstoð við grænt bókhald 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi, svo sem á sviði byggingariðnaðar, fasteignareksturs eða fasteignaþjónustu 

  • Reynsla af verkefnastjórnun 

  • Góð þekking á viðhaldi fasteigna 

  • Framúrskarandi samskipta- og þjónustuhæfni 

  • Góð hæfni í íslensku og ensku í tali og riti 

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð 

  • Einstaklingur þarf að vera lausnamiðaður og sýna frumkvæði 

  • Góð tölvukunnátta er skilyrði og reynsla af bókhalds-, öryggis-, hússtjórnar- og aðgangsstýrikerfum er kostur 

  • Góð þekking á eldvörnum og hæfni til að halda uppi öryggismenningu 

Advertisement published14. August 2026
Application deadline30. August 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Furuvellir 7
Type of work
Professions
Job Tags