Sunnulækjarskóli, Selfossi
Sunnulækjarskóli, Selfossi
Sunnulækjarskóli, Selfossi

Umsjónarkennari í 1. bekk Sunnulækjarskóla

Auglýst er staða umsjónarkennara í 1. bekk í 100% starfshlutfall. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Leitað er eftir áhugasömum grunnskólakennara sem vill kenna í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu og skapandi skólastarf.

Í Sunnulækjarskóla mynda kennarar og aðrir fagaðilar árgangs árgangateymi. Árgangateymin framkvæma og stjórna daglegu skólastarfi tiltekinna árganga eða námshópa í samvinnu við sína deildarstjóra. Góð teymisvinna er liður í að byggja upp jákvæðan starfsanda og sterkt lærdómssamfélag í skólanum.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda . 
  • Umsjón með daglegu skólastarfi er varðar viðkomandi umsjónarhóp.   
  • Er tengiliður umsjónarhóps innan skólans og við foreldra/forráðamenn.   
  • Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar. 
  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.   
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf grunnskólakennara   
  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð    
  • Hæfni og áhugi á skólastarfi   
  • Góð færni í mannlegum samskiptum     
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku   
  • Áhugi á skólaþróun og skapandi kennsluháttum mikilvægur   
Advertisement published12. August 2026
Application deadline20. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Norðurhólar 1, 800 Selfoss
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags