
Stekkjaskóli
Stekkjaskóli er nýr grunnskóli á Selfossi sem tók til starfa haustið 2021. Fyrsti áfangi nýbyggingar skólans var tekinn í notkun í mars 2023 og 2. áfangi var tekinn í notkun í janúar 2025. Næsta haust er gert ráð fyrir um 430 nemendum í 1.-9. bekk. Fullbyggður verður skólinn fyrir rúmlega 500 nemendur í 1.-10. bekk.
Stekkjaskóli er hannaður og byggður sem teymiskennsluskóli, með vel skipulögðum árgangasvæðum, góðum list- og verkgreinastofum, glæsilegu bókasafni og náttúrufræðistofu með stórum gróðurskála. Byggingin þykir með glæsilegri skólabyggingum á landinu.
Í Stekkjaskóla er lögð áhersla á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og nýsköpun, skapandi skólastarf, umhverfismál og jákvæðan skólabrag.
Stefnumörkun skólans tekur meðal annars mið af menntastefnu Árborgar sem byggir á hugmyndinni um skólann sem lifandi lærdómssamfélag.

Umsjónarkennarar á miðstig
Auglýst er eftir umsjónarkennurum á miðstig (eldri árgangar) í 100% starfshlutföll frá 1. ágúst 2026. Leitað er eftir áhugasömum og framsæknum grunnskólakennurum sem vilja kenna í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og skapandi skólastarf. Þekking, hæfni og áhugi á upplýsingatækni er mikilvæg ásamt þátttöku í skólaþróun.
Næsta haust er gert ráð fyrir um 430 nemendum í 1.-9. bekk.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1.100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
- Umsjón með daglegu skólastarfi er varðar viðkomandi umsjónarhóp
- Er tengiliður umsjónarhóps innan skólans og við foreldra/forráðamenn
- Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar
- Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf grunnskólakennara
- Reynsla af kennslu af mið - eða unglingastigi æskileg
- Reynsla af teymiskennslu kostur
- Góð þekking á upplýsingatækni mikilvæg
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
- Áhugi á skólaþróun og skapandi kennsluháttum mikilvægur
Advertisement published19. May 2026
Application deadline1. June 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Heiðarstekk 10
Type of work
Skills
ProactiveHuman relationsIndependencePlanning
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Leikskólakennarar óskast í Krikaskóla fyrir næsta skólaár
Krikaskóli

Umsjónarkennari — Tálknafjarðarskóli
Vesturbyggð

Íþróttakennari — Tálknafjarðarskóli
Vesturbyggð

List- og verkgreinakennari — Tálknafjarðarskóli
Vesturbyggð

Kennari eða leiðbeinandi í Leikskólann Aðalþing
Aðalþing leikskóli

Útinámskennari í leikskólann Aðalþing
Aðalþing leikskóli

List- og verkgreinakennari, með áherslu á sjónlistir
Stykkishólmsbær

Leikskólakennari í Leirvogstunguskóla
Leirvogstunguskóli

Sérkennari
Stykkishólmsbær

Umsjónarkennari á miðstigi
Stykkishólmsbær

List- og verkgreinakennari, með áherslu á hönnnun og smíði - Patreksskóli
Vesturbyggð

List- og verkgreinakennari, með áherslu á sjónlistir - Patreksskóli
Vesturbyggð