Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Tvær stöður Félagsráðgjafa í barnaverndarþjónustu Árborgar

Leitað er eftir framúrskarandi félagsráðgjafa sem er tilbúin að taka þátt í mikilvægum verkefnum hjá barnaverndarþjónustu Árborgar. Um er að ræða spennandi tækifæri til að taka þátt í þróun og uppbyggingu velferðarþjónustu í ört vaxandi sveitarfélaginu Árborg þar sem búa rúmlega 13.000 íbúar.

Hjá Velferðarþjónustu Árborgar er lögð rík áhersla á snemmtækan stuðning, samþætta þjónustu og farsæld barna. Starfið byggir á þverfaglegu samstarfi þar sem unnið er náið með fagfólki á sviði velferðar-, skóla- og frístundaþjónustu með það að markmiði að styrkja stöðu barna og fjölskyldna í samfélaginu.

Í starfinu felst meðal annars að sinna móttöku og meðferð barnaverndartilkynninga, meta aðstæður barna og fjölskyldna og grípa til viðeigandi úrræða í samræmi við Barnaverndarlög nr. 80/2002. Starfsmaður veitir ráðgjöf og stuðning til barna og forráðamanna, vinnur náið með fjölskyldum og öðrum samstarfsaðilum og tekur þátt í gerð og eftirfylgd með áætlunum um meðferð máls í samræmi við gildandi lög og verklagsreglur. Einnig felur starfið í sér þátttöku í þverfaglegu samstarfi og þróun þjónustu í samræmi við lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021.

Velferðarþjónusta Árborgar er framsækinn vinnustaður þar sem unnið er í nánu samstarfi við öflugan hóp fagfólks. Þar gefst tækifæri til að taka virkan þátt í þróun þjónustu og vinna að mikilvægum verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á líf barna og fjölskyldna.

Um er að ræða 100% ótímabundið starf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka barnaverndartilkynninga, skráning og mat á tilkynningum í samræmi við Barnaverndarlög nr. 80/2002.  
  • Könnun barnaverndartilkynninga samkvæmt viðeigandi lögum, reglum og verkferlum.  
  • Samskipti og samstarf við aðrar stofnanir og fagaðila við vinnslu barnaverndarmála. 
  • Virk þátttaka í þverfaglegri samvinnu á fjölskyldusviði Árborg.  
  • Þátttaka í stuðningsteymi barns í samræmi við lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021.  
  • Mat á stöðu og þörfum barna og fjölskyldna, með hagsmuni barns að leiðarljósi.  
  • Gerð og eftirfylgd með áætlunum um meðferð mála í samræmi við gildandi lög og verklag. 
  • Veita ráðgjöf og stuðning til barna og forráðamanna ásamt eftirfylgd með úrræðum. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsréttindi sem Félagsráðgjafi frá Háskóla Íslands 
  • Reynsla á starfi barnaverndarþjónustu er skilyrði- þar á meðal vinnslu mála skv. Barnaverndarlögum nr. 80/2002 
  • Þekking og reynsla af starfi sem málstjóri skv. Lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021 er skilyrði. 
  • Góð samskiptahæfni, frumkvæði og hæfni til sjálfstæðrar vinnu  
  • Þekking á lögum og reglugerðum sem tengjast starfssviði velferðarþjónustu . 
  • Færni í skráningu, greiningarvinnu og tölvukerfum opinberrar stjórnsýslu.  
  • Framúrskarandi hæfni í íslensku. 
Advertisement published18. May 2026
Application deadline28. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags