

Tónlistarkennari við Tónlistarskóla Djúpavogs
Djúpavogsskóli auglýsir eftir tónlistarkennara í 100% starf frá og með næsta skólaári. Um framtíðarstarf er að ræða.
Starfið felur í sér meðal annars, skipulag og utanumhald á kennslu nemenda. Samskipti við forráðamenn og samstarfsfólk og þátttöku í skipulagningu og framkvæmd tónleika og annarra tónlistarviðburða.
Djúpavogsskóli er samrekinn grunn- og tónlistarskóli með um 70 nemendur. Skólinn vinnur í takt við hæglætishugmyndir Cittaslow og leggur mikla áherslu á velferð og vellíðan. Starfsandinn er góður og tækifærin eru mörg fyrir skapandi og jákvæða einstaklinga. Skólinn er í mikilli þróun með áherslu á samþættingu, úti- og grenndarnám, núvitund, sjálfbærni og teymisvinnu. Við leitum að kennurum sem hafa farsæla kennslureynslu og eru tilbúin að taka þátt í þróunarstarfi og starfa eftir stefnu og framtíðarsýn skólans.
Skólastjóri er næsti yfirmaður.
- Kennsla nemenda í samræmi við meginmarkmið aðalnámskrár og með hliðsjón af þörfum og þroska þeirra í samráði við samkennara og skólastjórnendur.
- Undirbúningur nemenda fyrir tónleika, tónfundi, sýningar og aðra tónlistarviðburði.
- Skipulag og utanumhald á kennslu nemenda.
- Samskipti við forráðamenn og samstarfsfólk.
- Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd tónleika og annarra tónlistarviðburða.
- Stuðla að jákvæðu og hvetjandi skólaumhverfi fyrir alla nemendur.
- Þátttaka í að þróa faglegt skólastarf.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við starfsfólk skólans.
- Tónlistarkennaramenntun eða háskólamenntun í tónlist skilyrði.
- Gott vald á íslenskri tungu og áhugi á að nýta upplýsingatækni í kennslu.
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
- Áhugi á teymiskennslu og samstarfi
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Mikil samskipta- og samstarfshæfni.
- Faglegur metnaður og lausnamiðuð hugsun.
- Stundvísi og samviskusemi
- Hreint sakavottorð
Icelandic






