Njörður Holding ehf.
Njörður Holding ehf.
Njörður Holding ehf.

Tæknimaður óskast við uppsetningu og rekstur á magnesíum framleiðslu

Njörður leitar að tæknimanni í fullt starf við uppsetningu, gangsetningu og rekstur prufuframleiðslu félagsins á Akranesi.

Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér uppsetningu búnaðar, rafmagnsvinnu, lagnir, prófanir og daglegt eftirlit með framleiðslubúnaði. Viðkomandi verður hluti af teymi Njarðar og tekur virkan þátt í uppbyggingu nýrrar iðnaðarstarfsemi á Íslandi.

Helstu verkefni

  • Uppsetning og frágangur tækja og búnaðar.
  • Rafmagnsvinna, kapallagnir og tengingar.
  • Samsetning og tenging lagna, röra og annars búnaðar.
  • Þátttaka í prófunum og gangsetningu framleiðslubúnaðar.
  • Daglegur rekstur, eftirlit og viðhald búnaðar.
  • Bilanagreining og úrbætur eftir þörfum.

Hæfniskröfur

  • Verkleg færni og reynsla sem nýtist við uppsetningu, rekstur eða viðhald tæknibúnaðar.
  • Reynsla af rafmagnsvinnu eða lögnum er kostur.
  • Menntun á sviði vélfræði, rafiðna eða málmiðna er kostur en ekki skilyrði.
  • Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð.
  • Rík áhersla á öryggi, samstarf og lausnamiðaða hugsun.

Verkefnin eru almenn og taka mið af reynslu og réttindum hvers og eins. Einstaklingar með aðra menntun eða starfsreynslu sem nýtist við verkefnin eru einnig hvattir til að sækja um.

Starfsstöð: Bakkatún 30, 300 Akranes
Starfshlutfall: 100%
Umsóknarfrestur: 29. nóvember 2026

Um Njörð

Njörður var stofnaður árið 2023 og byggir á nýstárlegri tækni til magnesíumvinnslu úr sjó. Með starfsemi prufuframleiðslunnar leggur félagið grunn að nýrri iðngrein á Íslandi.

www.njordur.com

Advertisement published9. November 2026
Application deadline29. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Bakkatún 30, 300 Akranes
Type of work
Professions
Job Tags