
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Þroskaþjálfi eða iðjuþjálfi við Grunnskóla Borgarfjarðar
Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir þroskaþjálfa eða iðjuþjálfa í 80-100% stöðu.
Grunnskóli Borgarfjarðar er þriggja starfsstöðva skóli í Borgarfirði og frá haustinu 2026 verða um 27 nemendur í 1.-5. bekk Hvanneyri, um 115 nemendur í 1.-10. bekk á Kleppjárnsreykjum og um 27 nemendur í 1.-4. bekk á Varmalandi.
Grunnskóli Borgarfjarðar er teymiskennsluskóli þar sem kennarar vinna í teymi með samkennslu tveggja til fjögurra árganga. Þroskaþjálfi/iðjuþjálfi vinnur með teymunum. Skólinn vinnur eftir gildum heilsueflingar og grænfána og er leiðtogaskóli. Nánar um stefnu skólans er á heimasíðunni www.gbf.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þroskaþjálfi/iðjuþjálfi vinnur í nánu samstarfi við kennara, stuðningsfulltrúa og foreldra/forráðamenn nemenda í samráði við deildarstjóra.
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Vinnur að áætlanagerðum, þ.m.t. skólanámskrá, bekkjaráætlunum og einstaklingsáætlunum í samráði/samstarfi við kennara, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á
- Gerir færni-, þroska- og námsmat í samráði/samstarfi við kennara, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á
- Skipuleggur þjálfunaraðstæður, velur/útbýr þjálfunar- og námsgögn og fylgir eftir settum markmiðum. Metur árangur og endurskoðar markmið í samstarfi við samstarfsaðila
- Fjölbreytt nálgun í þjálfun og umsjón með nemendum í samvinnu við kennara, deildarstjóra og foreldra.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfi eða iðjuþjálfi.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Faglegur metnaður og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Jákvæðni, sveigjanleika og góða samskiptahæfni.
- Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
- Þekking á skipulagðri kennslu (TEACCH) er æskileg
- Reynsla af teymisvinnu æskileg
- Gott vald á íslensku máli.
Advertisement published20. May 2026
Application deadline3. June 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Varmaland-skóli 134934, 311 Borgarnes
Kleppjárnsreykir lóð , 320 Reykholt í Borgarfirði
Hvanneyri, 311 Hvanneyri
Type of work
Skills
ProactivePositivityAmbitionIndependenceTeam workDevelopmental counselor
Professions
Job Tags
Other jobs (4)
Similar jobs (12)

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Tengiliður farsældar barna – Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Þroskaþjálfi eða sérkennari óskast í Laugalandsskóla
Laugalandsskóli

Háskólamenntaður starfsmaður óskast í sérskóla
Arnarskóli

Sérkennslustjóri óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Ungbarnaleikskóli - leikskólakennari/ kennari: Fullt starf
Seltjarnarnesbær

Þroskaþjálfi í Hagaskóla
Hagaskóli

Húnaþing vestra auglýsir starf þroskaþjálfa
Húnaþing vestra

Fagaðili í Sérdeild Sunnulækjarskóla
Sunnulækjarskóli, Selfossi

Þroskaþjálfi
Austurbæjarskóli

Leikskólakennari/leiðbeinandi
Ævintýraborg við Eggertsgötu

Sérkennari óskast í Kóraskóla
Kóraskóli