Dagar hf.
Dagar hf.
Dagar hf.

Þjónustustjóri á Akureyri

Viltu taka þátt í að skapa framúrskarandi umhverfi fyrir starfsfólk og viðskiptavini fyrirtækja framtíðarinnar?

Þrífstu best í teymisvinnu?

Ert þú jákvæður, skipulagður og útsjónarsamur einstaklingur sem vill taka þátt í að létta viðskiptavinum okkar lífið með því að veita framúrskarandi þjónustu?

Ef þetta hljómar vel þá er staða þjónustustjóra fyrir þig.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Daglegur rekstur þjónustusamninga og samskipti við viðskiptavini
  • Dagleg stýring starfsfólks og verkefna
  • Ráðningar starfsfólks, þjálfun og kennsla
  • Eftirlit með gæðum þjónustunnar og ráðgjöf til viðskiptavina
  • Innleiðing breytinga, nýrra verkefna og verklags
  • Skráningar og eftirlit með tekjum og kostnaði
  • Skráning tíma til launa
  • Almenn starfsmannamál
  • Önnur verkefni að beiðni teymisstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þjónustustjóri þarf að vera sérlega lipur í mannlegum samskiptum
  • Sýna jákvætt viðhorf, nákvæmni og metnað til að ná árangri
  • Vera þjónustulundaður, lausnamiðaður og sýna frumkvæði
  • Reynsla af stjórnun og mannaforráðum
  • Góð tölvufærni og hæfni til að tileinka sér helstu viðskiptakerfi
  • Hæfni til að halda utan um stór og lítil verkefni
  • Góð gæðavitund
  • Íslensku og ensku kunnátta, bæði ritað og talað mál
  • Snyrtimennska og gott auga fyrir smáatriðum
  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
Advertisement published1. April 2026
Application deadline15. April 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Furuvellir 7, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags