Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Talmeinafræðingar - Heyrnar og talmeinastöð HH

Vilt þú taka þátt í að þróa nýtt verkefni talmeinafræðinga í skólaþjónustu?

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að reyndum talmeinafræðingum til starfa í nýtt og spennandi starf hjá Heyrnar og talmeinastöð. Markmið verkefnisins er að þróa verklag sem miðar að því að veita talþjálfun í nærumhverfi barna. Starfað verður í þverfaglegum teymum í nokkrum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða tilraunaverkefni til tveggja ára.

Heyrnar og talmeinastöð HH er miðstöð þekkingar í heyrnar og talmeinum á Íslandi sem veitir þjónustu á landsvísu. Hlutverk HT er að þjóna þeim sem eru heyrnarskertir, heyrnarlausir eða með mál og talmein.

Um er að ræða 70-100% tímabundið starf til tveggja ára og í boði eru nokkrar stöður talmeinafræðinga. Ráðið er í starfið frá 1. september n.k. eða eftir nánara samkomulagi.

Til greina kemur að ráða áhugasaman reynsluminni talmeinafræðing sem starfar undir handleiðslu reynslumeiri talmeinafræðings.

Helstu verkefni og ábyrgð

Talmeinafræðingur sinnir meðferð tal- og málmeina innan þeirra grunnskóla sem verkefnið nær til í samvinnu við aðra fagaðila. Hann ber ábyrgð á að veita skjólstæðingum sínum bestu meðferð og þjónustu sem í boði er á hverjum tíma. Talmeinafræðingur mun stjórna og skipuleggja þjónustu og meðferð innan sinnar starfsstöðvar auk þess að meta árangur meðferðar. Hann er leiðandi í gagnreyndum aðferðum  og ber ábyrgð á að innleiða nýjungar í meðferð og þjónustu á starfstöð. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi sem talmeinafræðingur
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi lokið 6 mánaða verklegri þjálfun undir handleiðslu reynds talmeinafræðings en einnig er handleiðsla í boði 
  • Sérþekking á málþroska barna/unglinga 
  • Sérþekking á málþroskaröskun DLD æskileg
  • Reynsla og áhugi á talþjálfun og almennri meðferð talmeina
  • Góð þekking á máltöku barna með dæmigerðan málþroska, frávikum í málþroska og frávikum í málhljóðamyndun/framburði hljóða 
  • Góð þekking á snemmtækri íhlutun m.t.t. barna með frávik í málþroska 
  • Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu 
  • Mjög góð skipulagshæfni, færni í forgangsröðun og sveigjanleiki
  • Sjálfstæði, frumkvæði og hæfni til að vinna undir álagi 
  • Mjög góð samskiptafærni og hæfni til samstarfs við ólíka fagaðila 
  • Góð tölvukunnátta  
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti 
  • Hreint sakavottorð
Advertisement published3. July 2026
Application deadline4. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Hraunbær 115, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags