Fossraf ehf
Fossraf ehf
Fossraf ehf

Tæknimaður - Kæli- og frystibúnaður

Ert þú með reynslu af kæli- og frystbúnaði eða brennandi áhuga á faginu?

Fossraf leitar að öflugum og lausnamiðuðum einstaklingi í fjölbreytt og spennandi verkefni á sviði kæli- og frystikerfa. Í starfinu felst ábyrgð á uppsetningu, viðhaldi og viðgerðum á kæli- og frystibúnaði, auk umsjónar með virkni og rekstri kerfanna.

Viðkomandi mun koma til með að starfa í fjölbreyttu og lifandi umhverfi með öflugu teymi. Um er að ræða 100% starf. Starfstöðvar eru á Selfossi og í Reykjavík.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Frímann Emilsson, [email protected] og Gunnlaugur Magnússon, [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn viðhaldsvinna og þjónusta á kælikerfum og öðrum búnaði
  • Uppsetning kælikerfa- og búnaðar
  • Heimsóknir og þjónusta hjá viðskiptavinum á höfuðbrogarsvæðinu, suður- og vesturlandi
  • Samskipti við viðskiptavini
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leitað er að jákvæðum einstaklingum sem er sjálfstæðir, skipulagðir og eiga auðvelt með mannleg samskipti
  • Áhugi á kæli- og frystikerfum
  • Sjálfstæði og lausnarmiðuð hugsun
  • Bílpróf
  • Vilji og geta til þess að sækja námskeið hjá erlendum framleiðendum
Advertisement published31. March 2026
Application deadline19. April 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Eyravegur 21, 800 Selfoss
Höfðabakki 7, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Driver's license (B)PathCreated with Sketch.ElectricianPathCreated with Sketch.Industrial mechanics
Professions
Job Tags