

TACTICA leitar að Sérfræðingi í upplýsingatækni og kerfisrekstri
Við hjá TACTICA leitum að liðstyrk í teymið okkar í upplýsingatækniþjónustu og kerfisrekstri
Ert þú þaulvanur uppsetningu, bilanagreiningu og rekstri tölvu- og netkerfa?
Þá erum við að leita að þér!
Sérfræðingar Kerfisrekstrar TACTICA sinna innleiðingu, uppsetningu, þjónustu og rekstri á tölvu- og net-, símkerfum viðskiptavina ásamt því að veita ráðgjöf í umbótarverkefnum.
Innleiðing, uppsetning og rekstur á Microsoft lausnum
Innleiðing, uppsetning og rekstur á netkerfum
Innleiðing, uppsetning og rekstur á tölvukerfum
Bilanagreining og viðhald upplýsingatæknikerfa
Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina
Greining og úttektir á umhverfum viðskiptavina
Þekking á gervigreindarlausnum
Ráðgjöf og áætlanagerð varðandi úrbætur
Samskipti við viðskiptavini og eftirfylgni í þjónustumálum
Uppsetning og skjölun kerfishandbókar á umhverfi viðskiptavina
Reynsla af sambærilegu starfi
Samskiptahæfni og jákvætt viðmót í þjónustu
Geta unnið í teymi og sjálfstætt
Breið tækniþekking og áhugi á að læra nýja hluti
Lausnamiðað hugarfar
Góð þekking á Windows umhverfi og netkerfum
Reynsla af Microsoft 365 og skýjaþjónustum
Þekking á Google lausnum
Bakgrunnur sem kerfisstjóri er kostur
- Samgöngustyrkur
- Farsímaáskrift og nettenging
- Hvatakerfi
- Niðurgreiddur heitur matur í hádeginu
- Orkudrykkir og sódavatn, við eigum það allt!
Hjá TACTICA starfar þéttur hópur sérfræðinga við að leysa úr vanda og innleiða nútímalegar lausnir sem auðvelda rekstur fyrirtækja.
Icelandic
English





